Innlent

Ráðherrar verða átta

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Jóhanna Sigurðardóttir staðfestir að ráðherrar ríkisstjórnarinnar verða 8.
Jóhanna Sigurðardóttir staðfestir að ráðherrar ríkisstjórnarinnar verða 8.
Ráðherrum mun fækka niður í átta þegar Katrín Júlíusdóttir kemur úr fæðingarorlofi, sagði Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra þegar hún flutti skýrslu um störf og stefnu ríkisstjórnarinnar á þingfundi í dag. Jóhanna sagði ekkert um það hvaða ráðherra myndi víkja úr ríkisstjórninni þegar þar að kemur.

Eins og kunnugt er voru gerðar miklar breytingar á ríkisstjórninni við síðustu áramót og ráðherrum fækkað um tvo. Þetta er í annað skipti sem veigamiklar breytingar eru gerðar því að fyrir um ári síðar yfirgáfu Gylfi Magnússon efnahags- og viðskiptaráðherra og Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra ríkisstjórnina.

Þegar ríkisstjórnin tók við völdum voru ráðherrar 12 og því mun þeim hafa fækkað um þriðjung þegar allar breytingarnar eru um garð gengnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×