Innlent

Fundu kannabis, exi og sverð

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu upprætti kannabisræktun í íbúð í fjölbýlishúsi í vesturborginni í nótt og lagði hald á eitthvað á annan tug plantna. Auk þess fannst stór exi og sverð á vettvangi.

Eigandinn og ræktandinn var heima þegar lögregla kom á staðinn og viðurkenndi hann ræktunina og var sleppt að yfirheyrslum loknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×