Innlent

Samfylkingin í Reykjavík á móti tillögu Bjarna

Stjórn Samfylkingarfélagsins í Reykjavík leggst gegn þingsályktunartillögu Bjarna Benediktsssonar þingmanns um að draga ákæru á hendur Geir Haarde til baka.

Stjórnin bendir á að með þvi væri Alþingi að bregðast fyrirheitum um rannsókn og uppgjör eftir hrun og þar með væri gamla samtryggingakerfið leitt til öndvegis á ný í íslenskum stjórnmálum.

Stjórn féalgsins væntir þess að allir þingmenn Samfylkingarinnar greiði atkvæði gegn tillögunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×