Innlent

Dvínandi líkur á uppsögn kjarasamninga

Dvínandi líkur eru á því að kjarasamningum verði sagt upp vegna vanefnda stjórnvalda á fyrirheitum, sem gefin voru við undirritun samninganna.

Þannig vilja 16 aðildarfélög Starfsgreinasambandsins af 19, að samningunum verði ekki sagt upp. Í ályktun formannafundar sambandsins í gær, segir að aðilar vinnumarkaðarins hafi staðið við öll ákvæði samninganna, en það sé ámælisvert á ríkisstjórnin skuli ekki hafa gert það, og krafan sé að hún geri það tafarlaust.

Fjallað verður nánar um stöðuna í samningamálunum á formannafundi ASÍ í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×