Innlent

Felguþjófur dæmdur

Nítján ára gamall karlmaður frá Akureyri var dæmdur í í dag í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að stela hjólbörðum og felgum undan bifreið að gerðinni Subaru Impreza, sem stóð við bílasölu Toyota á Akureyri. Brotið átti sér stað í nóvember síðastliðnum.

Pilturinn hefur áður verið dæmdur fyrir líkamsárás og umferðalagabrot. Pilturinn játaði brot sitt skýlaust og var það, auk ungs aldurs, talið honum til tekna. Því skal fresta fullnustu refsingarinnar og hún niður falla að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dómsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×