Meintum ofbeldismanni úthýst af heimili sínu á Akureyri Lóa Pind Aldísardóttir skrifar 19. janúar 2012 18:35
Heimilisfaðir, sem talinn er hafa ráðist á sambýliskonu sína á Akureyri um helgina, hefur verið fluttur af heimili sínu og bannað að koma þangað í fjórar vikur. Þetta er í annað skiptið sem ofbeldismanni er vísað á brott af heimili sínu, eftir að slíkt úrræði var lögleitt fyrir hálfu ári. Á sama tíma hafa 60 konur leitað til Kvennaathvarfsins. Kolbrún Halldórsdóttir barðist árum saman fyrir því að alþingi samþykkti þessa svokölluðu austurrísku leið svo fórnarlömb ofbeldis þyrftu ekki að flýja heimili sín - heldur yrði gerandinn fjarlægður. Hugmyndin naut ekki stuðnings fyrr en í júní í fyrra þegar Alþingi samþykkti úrræðið. Síðan lögin tóku gildi hefur þeim tvisvar verið beitt, einu sinni í höfuðborginni og nú um helgina á Akureyri. Sú ákvörðun var tekin eftir að aðstandandi sambýlisfólks á Akureyri hringdi í Neyðarlínuna aðfararnótt laugardags og óskaði eftir aðstoð lögreglu. Þegar lögregla kom á vettvang var háreysti og læti á heimilinu, heimilisfaðirinn undir áhrifum áfengis og hafði veist að sambýliskonu sinni með höggum og spörkum. Tvö ung börn þeirra voru heima og vakandi. Maðurinn var handtekinn og daginn eftir ákvað lögregla að setja manninn í 3ja mánaða nálgunarbann og banna honum að fara heim til sín í fjórar vikur, meðal annars vegna vitneskju um að hann hefði áður beitt konu sína ofbeldi. Rjúfi menn slíkt bann ítrekað getur það varðað allt að tveggja ára fangelsi. Ákvörðun lögreglu var tekin fyrir í Héraðsdómi Norðurlands í dag -en dómari tók sér frest til morguns til að kveða upp sinn úrskurð. Í Reykjavík var ofbeldismaður fjarlægður af heimili sínu í október eftir að lögreglan hafði verið kvödd að heimili ungra hjóna með lítil börn þrisvar á rúmri viku. Eiginmaðurinn gaf þá skýringu á áverkum konu sinnar í þriðja skiptið að hún hefði dottið niður stiga - en konan hélt öðru fram í sjúkrabílnum á leið upp á slysadeild. Hún var marin og með áverka í andliti. Sex og hálfur mánuður er síðan lögin tóku gildi - á því tímabili hafa 60 konur leitað til Kvennaathvarfsins og 43 börn.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Innlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Erlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri fréttir Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Sjá meira