Blaðamaður dagblaðsins The Irish Times gefur nýafstaðinni tónlistarhátíð, Iceland Airwaves, fína einkunn.
Tónleikar Sóleyjar í Iðnó fá mjög góða dóma.
„Hún er með æðislega rödd, notar svalar „lúppur" og blandar á snilldarlegan hátt saman góðum melódíum og naumhyggju, sem minnir á Lauru Veirs," skrifaði blaðamaðurinn, sem hreifst einnig af tónleikum FM Belfast sama kvöld.
„FM Belfast er ein skemmtilegasta tónleikasveit í heimi og hún sá til þess að ekki kom til greina að íslenskir tónleikagestir, sem eru vanir að setjast niður hvenær sem þeim dettur í hug, gætu gert það." Tónleikar Samaris í Hafnarhúsinu fá einnig flotta dóma. „Samaris spilaði frábæra, drungalega elektróníska tónlist, sem minnti á Bat For Lashes og Fever Ray."
Loks minnist írski blaðamaðurinn á lokatónleika Sigur Rósar í Nýju Laugardalshöllinni og segir þá hafa verið fallega og epíska.
„Flottur endir á tónlistarhátíð sem er yndislega handahófskennd, skrítin, skemmtileg, heillandi og frekar falleg. Þetta var Jumanji-tónleikablanda þar sem þú veist aldrei hvað gerist á næstu tónleikum. Allir sem ég talaði við sögðu að um leið og þú hefðir heimsótt Ísland vildir þú snúa þangað aftur. Þeir höfðu rétt fyrir sér." - fb
Handahófskennd og heillandi
