Segja eignir Orkuveitunnar seldar án auglýsinga 6. mars 2012 16:15
Málefni Orkuveitu Reykjavíkur voru rædd á borgarstjórnarfundi í dag. Tilefni umræðunnar eru upplýsingar um að OR hafa selt eignarhluta sinn í Enex Kína og Envent Holding án auglýsingar. Í tilkynningu frá borgarstjórnarflokki Sjálfstæðisflokksins segir Hanna Birna Kristjánsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn, málið grafalvarlegt og bæri þess merki að hvorki Orkuveitan né meirihlutinn í Reykjavík, hefði skilning á mikilvægi þess að fyrirtækið starfi í samræmi við góða stjórnsýslu og skyldur sínar sem fyrirtæki í almannaeigu. Ennfremur segir í tilkynningu að Hanna Birna minnti á ítrekaðar samþykktir borgarráðs, borgarstjórnar og stjórnar OR um önnur vinnubrögð. Hún minnti borgarstjórn einnig á ábendingar og athugasemdir umboðsmanns Alþingis, þar sem áform um sölu opinberra eigna án auglýsingar voru átalin og fylgt var eftir með einróma samþykkt borgarstjórnar um að slíkir starfshættir væru óásættanlegir. Svo segir orðrétt í tilkynningunni: „Það sem nú hefur verið opinberað um þessa sölu er klárlega í algjöru ósamræmi við þetta allt. Það er auðvitað með hreinum ólíkindum, eftir allt sem á undan er gengið í málefnum þessa fyrirtækis, að það skuli nú selja opinberar eigur almennings án auglýsingar. Ekki aðeins er það í ósamræmi við það jafnræði sem verður að gilda við sölu opinberra eigna, svo allir áhugasamir geti gert tilboð, heldur hlýtur það að vera í algjörri andstöðu við hagsmuni fyrirtækisins um að hámarka söluvirði eigna fyrirtækisins. Hanna Birna vakti einnig athygli á því að málið hefði ekki verið formlega samþykkt af stjórn OR, undraðist að hvorki borgarstjóri né meirihlutinn hefði tekið á því með nokkrum hætti síðan það varð opinbert og krafði borgarstjóra um skýr svör. „Á sínum tíma sakaði Dagur B. Eggertsson stjórnendur Orkuveitu Reykjavíkur um að það sem hann kallaði ,,brunaútsölu í bakherbergjum" þegar til stóð að selja eignir án opinberrar auglýsingar. Núverandi meirihluti verður að svara því hvort síkt er á ferðinni nú. Það er alfarið á ábyrgð borgarstjóra og núverandi meirihluta að fylgja eftir samþykktum og verklagsreglum. Í þessu tilfelli var það ekki gert, sem krefst nákvæmrar skoðunar, skýrra svara og ábyrgðar."
Mest lesið Annar bíll möglega í „samfloti“ þegar banaslysið varð Innlent Vara við því að færð spillist í kvöld Innlent Skoða að ná Lúðvík upp áður en sprungan verður fyllt Innlent „Maður eiginlega skammast sín eftir á að hafa verið stressaður“ Innlent Rukka ekki fyrir 36 tíma leikskóladvöl Innlent Lögreglan leitar manns Innlent Seldi Pokémon-spjald á yfir tvo milljarða Erlent Nýr samfélagsmiðill bara fyrir íslenskt samfélag Innlent Ungir menn sátu fyrir bjórsala og rændu tugum vodkaflaska Innlent Ástæða til að forðast hinn tvöfalda lás Innlent Fleiri fréttir Neitar að hafa nauðgað stúlku milli trjáa Annað hvort í pólitíkina eða á eftirlaun Fleiri reita hár sitt yfir skorti á þrifum en nagladekkjum Kvikuhlaup og eldgos enn líklegasta sviðsmyndin Grásleppan hleypir upp störfum þingsins Hættur sem framkvæmdastjóri Framsóknar Fyrrverandi markvörður vill fram fyrir Miðflokk Viðgerð vegna eldsvoða að ljúka og Landspítali fær pláss Ungir menn sátu fyrir bjórsala og rændu tugum vodkaflaska Stærstur hluti foreldra falli algjörlega utan afsláttarkerfis Lögreglan leitar manns Annar bíll möglega í „samfloti“ þegar banaslysið varð Ný leið í leikskólamálum kynnt og von á snjókomu í kvöld Rukka ekki fyrir 36 tíma leikskóladvöl Deila um vegslóða fyrir Hæstarétt Körfuboltastjarna íhugar framboð í Garðabæ Íhugar alvarlega formannsframboð hjá Vinstri grænum Ástæða til að forðast hinn tvöfalda lás Komi öllum við hverjir kaupa vændi eða ætli að gera það Vara við því að færð spillist í kvöld Sundhöllinni lokað á meðan píparar ráða ráðum sínum Flykktust upp í turn til að sjá hvort sexan kæmist í loftið Kynna breytta Reykjavíkurleið Bein útsending: Ásgeir og Þórarinn mæta fyrir þingnefnd Dregur líklega úr svifryksmengun seint í dag Skoða að ná Lúðvík upp áður en sprungan verður fyllt „Maður eiginlega skammast sín eftir á að hafa verið stressaður“ Grunaður fíkniefnasali stöðvaður fyrir að tala í síma Á ekki von á neinni byltingu innan Framsóknarflokksins Földu fíkniefni í morgunkornspökkum og fengu send Sjá meira