Síminn biðst afsökunar 27. febrúar 2012 11:55 Síminn.
Símanum þykir leitt að þau mistök urðu að upphaflegu erindi frá kvartanda, sem barst haustið 2008, var ekki svarað fyrr en ári síðar þegar lögmaður kvartanda ítrekaði erindið. Síminn hefur beðist afsökunar á því í svörum sínum til Póst- og fjarskiptastofnunar, en einkum til kvartanda sem hefur fyrir vikið þurft að bíða mun lengur en eðlilegt er eftir niðurstöðu í málinu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Símanum en í Fréttablaðinu í dag var greint frá því að Póst- og fjarskiptastofnun (PFS) hefur ákveðið að kæra starfsmann Símans til lögreglu fyrir að skoða símtalaskrá fyrrverandi konu sinnar. Þá verður Síminn jafnframt kærður til lögreglu fyrir brot á fjarskiptalögum við meðferð málsins. Þetta kemur fram í ákvörðun PFS sem birt verður opinberlega í vikunni og Fréttablaðið hefur undir höndum. Í svari Símans, sem var sent á fjölmiðla í morgun, kemur fram að starfsmaðurinn hafi verið sendur í ótímabundið leyfi. Hér fyrir neðan má finna svar Símans í heild sinni og í meðfylgjandi hlekk má nálgast frétt Fréttablaðsins. Tilkynning Símans: Póst – og fjarskiptastofnun hefur með ákvörðun sem stofnunin sendi frá sér í dag vísað til lögreglu máli, sem snýr að kvörtun á misnotkun starfsmanns Símans á aðstöðu sinni í starfi. Jafnframt átelur Póst- og fjarskiptastofnun Símann fyrir að hafa látið stofnuninni í té „ófullnægjandi og misvísandi upplýsingar"undir rannsókn málsins og sýnt af sér „ámælisvert athafnaleysi" með því að bregðast seint við kvörtun. Símanum þykir leitt að þau mistök urðu að upphaflegu erindi frá kvartanda, sem barst haustið 2008, var ekki svarað fyrr en ári síðar þegar lögmaður kvartanda ítrekaði erindið. Síminn hefur beðist afsökunar á því í svörum sínum til Póst- og fjarskiptastofnunar, en einkum til kvartanda sem hefur fyrir vikið þurft að bíða mun lengur en eðlilegt er eftir niðurstöðu í málinu. Þegar ítrekun barst var málið umsvifalaust rannsakað innanhúss hjá Símanum og í öllu unnið eftir verklagsreglum félagsins. Starfsmaðurinn hefur nú verið sendur í ótímabundnið leyfi. Síminn átti fund með lögreglu í síðustu viku og upplýsti hana um málið. Á þeim fundi kom skýrt fram af hálfu lögreglu að hún er þeirrar skoðunar að atvik sem þetta heyri undir lögreglu en ekki Póst- og fjarskiptastofnun að því er varðar mögulegt brot starfsmannsins. Lögregla lýsti sig jafnframt sammála þeirri skoðun að Símanum hefði verið óheimilt að afhenda umbeðnar upplýsingar öðrum en lögreglu eða ákæruvaldi. Þetta benti Síminn kvartanda á í svari sínu en einnig Póst- og fjarskiptastofnun. Gögn um mögulegt brot starfsmannsins vildi fyrirtækið ekki afhenda Póst- og fjarskiptastofnun með vísan í ákvæði XI. kafla sakamálalaga og 42. grein fjarskiptalaga. Síminn hefur varðveitt gögn málsins og mun veita alla mögulega aðstoð komi til rannsóknar lögreglu. Hvað sem öðru líður liggur fyrir að þetta mál varð Símanum tilefni til þess að fara yfir verkferla, vinnubrögð og samskipti innanhúss til að tryggja að slíkt endurtaki sig ekki og standa vörð um friðhelgi einkalífs viðskiptavina sinna.
Tengdar fréttir Starfsmaður kærður til lögreglu og sendur í leyfi Póst- og fjarskiptastofnun (PFS) hefur ákveðið að kæra starfsmann Símans til lögreglu fyrir að skoða símtalaskrá fyrrverandi konu sinnar. Þá verður Síminn jafnframt kærður til lögreglu fyrir brot á fjarskiptalögum við meðferð málsins. Þetta kemur fram í ákvörðun PFS sem birt verður opinberlega í vikunni og Fréttablaðið hefur undir höndum. 27. febrúar 2012 08:00 Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Fleiri fréttir Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Sjá meira
Starfsmaður kærður til lögreglu og sendur í leyfi Póst- og fjarskiptastofnun (PFS) hefur ákveðið að kæra starfsmann Símans til lögreglu fyrir að skoða símtalaskrá fyrrverandi konu sinnar. Þá verður Síminn jafnframt kærður til lögreglu fyrir brot á fjarskiptalögum við meðferð málsins. Þetta kemur fram í ákvörðun PFS sem birt verður opinberlega í vikunni og Fréttablaðið hefur undir höndum. 27. febrúar 2012 08:00