Starfsmaður kærður til lögreglu og sendur í leyfi 27. febrúar 2012 08:00 Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Símans,
Póst- og fjarskiptastofnun (PFS) hefur ákveðið að kæra starfsmann Símans til lögreglu fyrir að skoða símtalaskrá fyrrverandi konu sinnar. Þá verður Síminn jafnframt kærður til lögreglu fyrir brot á fjarskiptalögum við meðferð málsins. Þetta kemur fram í ákvörðun PFS sem birt verður opinberlega í vikunni og Fréttablaðið hefur undir höndum. Svöruðu ekki í heilt árMálið hófst vorið 2008, þegar starfsmaðurinn skoðaði skrá yfir símtöl fyrrverandi konu sinnar. Þau voru þá nýskilin. Konuna grunaði hvernig í pottinn væri búið og fékk lögmann sinn til að senda fyrirspurn um málið til Símans og óska eftir upplýsingum um hvort hún hefði verið hleruð. Henni var ekki svarað fyrr en eftir að ítrekun var send ári síðar, haustið 2009. Forsvarsmenn Símans segja mannleg mistök hafa valdið því að fyrra bréfið týndist. Þegar Síminn tók erindið loks til umfjöllunar varð niðurstaðan sú að vísa konunni á lögreglu. Fyrirtækið taldi ljóst að maðurinn hefði ekki hlerað síma konunnar, enda hefði hann einfaldlega ekki aðstöðu til þess, en taldi sér þess utan ekki heimilt samkvæmt fjarskiptalögum að veita öðrum en lögreglunni upplýsingar um mál sem þessi. Á alvarlegum villigötumKonan kvartaði yfir svarinu til PFS sumarið 2010, sem tók málið í kjölfarið til skoðunar. Í ákvörðun PFS birtist mjög harðorð gagnrýni á vinnubrögð Símans og ekki síður samskiptin við PFS vegna málsins. Í ákvörðunarorðum segir að í sjálfu sér hafi ekki verið rangt af Símanum að vísa konunni á lögreglu, enda kunni starfsmaðurinn að hafa gerst sekur um refsiverða háttsemi. Fyrirtækið sé þrátt fyrir það á „alvarlegum villigötum“ í þeirri afstöðu sinni að konan eigi ekki heimtingu á upplýsingum um það hvort maðurinn hafi gægst í persónuupplýsingar um hana. Afstaðan varpi rýrð á það traust sem viðskiptavinir Síman verði að bera til fyrirtækisins. Hún sé bæði röng og ámælisverð og er lögreglu falið að rannsaka hvort um refsivert brot á fjarskiptalögum er að ræða. PFS telur jafnframt að ekkert geti skýrt eða réttlætt tafirnar á málinu, sem Síminn hefur útskýrt með því að upphaflega bréfið hafi týnst innanhúss. Þetta telur stofnunin alvarlegt og ámælisvert. Óboðlegur málflutningurÞað var raunar fyrir tilviljun, þegar öryggisstjóri Símans missti það út úr sér á fundi með starfsmönnum stofnunarinnar, að PFS komst að því að starfsmaðurinn hefði við innanhúsrannsókn Símans orðið uppvís að brotinu og honum verið veitt áminning. PFS gagnrýnir Símann fyrir mótsagnakenndan málatilbúnað og upplýsingagjöf um þetta. Vitnað er til bréfs Símans til PFS frá mars 2011 þar sem sagði að innri rannsókn hefði bent til þess að starfsmaðurinn væri saklaus af ásökunum konunnar og því hafi félagið ekki séð sér stætt á að halda áfram með málið án aðkomu lögreglu. Þetta telur PFS beinlínis „ranga og misvísandi upplýsingagjöf“ og „til þess fallna að afvegaleiða stjórnvaldið í rannsókn sinni“. Með þessu hafi Síminn „ætlað að hylma yfir brot“ starfsmannsins og átelur PFS Símann harðlega fyrir þetta. Síminn skýrir þetta þannig að upphaflegt erindi frá PFS hafi bara snúið að meintri hlerun, en ekki skoðun starfsmanns á símnotkun. Þessa afsökun tekur PFS ekki gilda og segir „málflutning sem þennan vera óboðlegan og til marks um vinnubrögð þar sem hálfsannleikur og orðhengilsháttur er talinn vera réttlætanlegur í samskiptum við eftirlitsstjórnvaldið“. Þá tekur PFS fram að stofnunin hafi ekki heimildir til að leggja sektir á Símann vegna málsins, sem annars hefði komið vel til álita. Annarleg afstaða til SímansÞað eru ekki síður þung orð sem látin eru falla í svörum Símans til PFS vegna meðferðar málsins hjá stofnuninni. Síminn lýsir yfir vonbrigðum með vinnubrögð PFS og málsmeðferðin gefi tilefni til að draga í efa hæfi stofnunarinnar til að ljúka málinu á hlutlausan og málefnalegan hátt. Orðaval í bréfaskiptum beri vott um „annarlega huglæga afstöðu“ PFS til Símans og enn fremur sakar Síminn PFS um að hafa rofið trúnað með því að miðla til konunnar upplýsingum sem Síminn hafði látið stofnuninni í té. Þá hafi verið brotið á andmælarétti Símans í málinu. Síminn fer fram á það við PFS að ákvörðunin verði ekki birt opinberlega, vegna þess hve persónulegt málið sé. Þessu hafnar stofnunin.stigur@frettabladid.is
Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Fleiri fréttir Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Sjá meira