Leit að andliti fyrir íslenska skólínu 30. október 2012 11:00 Hagkaup fékk nýverið hönnuðinn Sigrúnu Lilju Guðjónsdóttur til að hanna fyrir sig nýja skólínu sem kemur í verlsanir núna fyrir jólin.
Hagkaup fékk nýverið hönnuðinn Sigrúnu Lilju Guðjónsdóttur til að hanna fyrir sig nýja skólínu sem kemur í verlsanir fyrir jólin. Skólínan ber nafnið 101 og eru skórnir sem Sigrún hannaði fyrir línuna kallaðir Sigrún Lilja for 101. Línan er innblásin af nýjustu straumum og stefnum skóheimsins. Um þessar mundir stendur yfir leit að andliti línunnar en Hagkaup og Sigrún Lilja hafa blásið til opinna áheyrnaprufa á fimmtudaginn n.k. fyrir utan Hagkaup í Smáralind á milli kl. 17-19. "Það koma allar konur til greina sem eru 18 ára og eldri. Við viljum hvetja sem flestar til að koma á staðinn,"segir Sigrún Lilja. Það eru athafnir, metnaður og markmið sem vega þungt í valinu á móti almennu heilbrigði og geislandi útliti. "Við erum því ekki að einblína á ákveðið útlit heldur viljum við að þetta verði stúlka/kona með bein í nefinu. Þetta verða því ekki alveg hefðbundnar áheyrnarprufur heldur meira hugsað eins og atvinnuviðtal. Við viljum því biðja umsækjendur um að taka með sér ferilskrá eða sambærilegt skjal og í raun öll þau gögn sem sýna hvað sú hin sama hefur gert hingað til og eða hvert hún stefnir til að aðstoða okkur við valið á andliti línunnar. Við erum því að leita af heilbrigðri stúlku/konu sem hefur skýra stefnu og markmið í lífinu og hefur nú þegar eða vill í framtíðinni láta til sín taka á hinum ýmsu sviðum,"segir Sigrún Lilja Á staðnum munu umsækjendur skilja eftir ferilskrá, myndir og önnur gögn sem þeir telja að máli geti skipt við valið. Allir umsækjendur svara nokkrum spurningum, eru myndaðir og hitta dómnefndina á staðnum. Sú sem verður fyrir valinu fer í stóra myndatöku fyrir línuna sem mun birtast mjög víða bæði í blöðum, auglýsingum og í gluggum Hagkaupa. Að auki fær hún veitt verðlaun frá Hagkaupum. Tilkynnt verður hver stúlkan/konan sem verður fyrir valinu sem andlit línunnar þegar línan verður kynnt til leiks með viðburði í nóvember. Áhugasamar sem eru orðnar 18 ára og eldri eru beðnir um að mæta fyrir utan verslun Hagkaupa í Smáralind fimmtudaginn n.k. 1.nóvember á milli kl 17-19. Þar verður einnig hægt að fá svar við spurningum sem vakna
Mest lesið Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga Lífið „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Lífið Stór brjóst eru stór Lífið Bestu kvikmyndir 21. aldarinnar Bíó og sjónvarp Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Lífið „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Lífið Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Lífið Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Lífið Grái skilnaðurinn: Sífellt fleiri 50+ að skilja Áskorun Oddvitaáskorunin: „Sérvitur sveitavargur“ Lífið Fleiri fréttir „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Oddvitaáskorunin: „Sérvitur sveitavargur“ Stór brjóst eru stór Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Fengu Dern í stað Bonham Carter Jóhann Alfreð með púlsmæli og fékk að finna fyrir því Úrslitakvöld Eurovision verður í beinni á Rúv 2 Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Dorrit djammaði með Adwoa Aboah á Sikiley Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Oddvitaáskorunin: Besti landsbyggðarandinn þrátt fyrir fjölmenni Sigur Rós spilar í 100 ára afmæli Attenboroughs Andar sig reyklaus í gegnum kosningabaráttuna Ókunnug kona í salnum lifði sig gríðarlega inn í þáttinn Adam fór á skeljarnar í Kerlingarfjöllum Mínusmeðlimir fóru yfir rugltímann: „Ekki drukkið í fimmtán ár“ Albert keypti þakíbúð á hálfan milljarð Höguðu sér vel á árshátíð Haga Útför Björgvins Halldórssonar Athafnakona selur draumaíbúð í Hlíðunum Oddvitaáskorun: Býr á Hellu en eiginmaðurinn í Belgíu Áfengið yndislegt ef þú kannt að fara með það Gummi Tóta og Guðbjörg keyptu á 145 milljónir Sjá meira