Innlent

Vilja að helgargestir lækki í sér

BBI skrifar
Næturgestir í miðbænum eru heldur háværir að mati íbúa.
Næturgestir í miðbænum eru heldur háværir að mati íbúa. Mynd/Hari
Íbúasamtök miðborgar Reykjavíkur vilja að kráareigendur í miðbænum hengi upp skilti utan við bari sína til að brýna fyrir djammandi bæjargestum að ganga hljóðlega um.

Íbúar í miðbænum eru orðnir langþreyttir á þeim hávaða sem fylgir skemmtanahaldi og telja að í siðuðum borgum í evrópu tíðkist ekki slík háreysti. „Hinn almenni helgargestur veitingahúsanna í miðborginni er hávær og fer með hrópum og köllum um torg og stræti og ef hann bregður sér út af krá til að fá sér smók keppist hann við að yfirgnæfa alla hina," segir í fréttatilkynningu.

Þeir telja að eftir að reykingabannið kom til framkvæmda hafi hávaðinn aukist til muna og benda á að veitingamenn í Evrópu hafi margir hverjir hengt upp skilti fyrir utan bari sína til að hvetja gesti til að taka tillit til nágranna.

Íbúasamtök miðborgarinnar hafa nú farið fram á að íslenskir bareigendur komi sér upp svipuðum skiltum og telja að það geti leyst allan vandann eða að minnsta kosti bætt ástandið til muna. Þeir hafa sent orðsendingu á Félag kráareigenda og Hverfisráð Miðborgar, borgarstjóra, lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu og fleiri staði til að koma málstað sínum á framfæri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×