Innlent

Þessir vilja vinna hjá RÚV

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Páll Magnússon útvarpsstjóri.
Páll Magnússon útvarpsstjóri.
Tilkynnt var í dag hverjir sóttu um dagskrárstjóra sjónvarps og dagskrárstjóra útvarps hjá RÚV. Á listanum eru nokkrir kunnir einstaklingar. Alls sóttu 29 um dagskrárstjóra sjónvarps. Þar á lista eru meðal annars Ásdís Olsen aðjúnkt við Háskóla Íslands, Edda Björgvinsdóttir leikkona, Skarphéðinn Guðmundsson, dagskrárstjóri hjá Stöð 2, og Þorsteinn J. Vilhjálmsson dagskrárgerðarmaður.

Þeir sem sóttu um dagskrárstjóra Útvarpsins eru meðal annars Berghildur Erla Bernharðsdóttir, sem var kynningarstjóri Stjórnlagaráðs, Margrét Marteinsdóttir, starfandi dagskrárstjóri, og Randver Þorláksson leikari.

Það er Páll Magnússon útvarpsstjóri sem er næsti yfirmaður dagskrárstjóra og hann ræður í stöðuna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×