Lífið

Dreymir um að eignast börn

Myndir/Cover media
Leikkonan Kristen Stewart, 22 ára, brosti blítt þegar hún mætti klædd í fallega munstraðan kjól í sjónsvarpsþátt Jay Leno á mánudaginn. Þar ræddi hún um síðari hluta kvikmyndarinnar The Twilight Saga: Breaking Dawn sem er væntanleg í kvikmyndahús um heim allan. Leikkonan ræddi líka að hana langar að verða móðir en er ekkert að flýta sér í þeim málum eins og er. Ef myndirnar eru skoðaðar má sjá að Kristen reynir nú að laga ímynd sína eftir að hún hélt fram hjá mótleikara sínum og unnusta Robert Pattinson.

Kristen lítur vel út.
Leikkonan var settleg í sjónvarpsviðtali.
Og veifaði til áhorfenda sem misstu sig í fagnaðarlátum þegar hún birtist.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.