Innlent

Vindill sem Churchill reykti á Íslandi til sölu

Winston Churcill.
Winston Churcill.
Churchill klúbburinn á Íslandi ætlar að bjóða upp hálfreyktan vindil fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, Winston Churchill, sem hann reykti hér á landi þann 16. ágúst árið 1941. Breski stjórnmálaleiðtoginn var þá á heimleið yfir hafið eftir að hafa undirritað Atlantshafssáttmálann ásamt Roosevelt þáverandi Bandaríkjaforseta.

Samkvæmt Churchill klúbbnum kom Churchill meðal annars við í Alþingishúsinu þar sem hann flutti ræðu af svölum þess fyrir mikinn mannfjölda sem hafði safnast saman á Austurvelli.

Hálfreyktur vindill sem hann skyldi eftir sig í öskubakka í Alþingishúsinu er ennþá til í fórum Hjörleifs Hilmarssonar, en faðir hans Hilmar Árnason, var staddur á Alþingi þegar Churchill var þar.

Í frétt sem birtist í Morgunblaðinu árið 2008 er atburðarrásinni lýst svona: „Hann lagði vindilinn frá sér við eina súluna í alþingishúsinu. Lengi vel áttum við úrklippu úr dagblaði þar sem sjá mátti Churchill og vindilinn við súluna. Blaðamaðurinn sem tók þá mynd ætlaði að ná vindlinum en pabbi varð á undan honum. Hann var alltaf þarna meira og minna því afi minn, Árni Bjarnason, var þingvörður á Alþingi á þessum tíma."

BBC greindi svo frá því að árið 2010 að hálfreyktur vindill, sem Churchill hafði skilið eftir á ríkisstjórnarfundi, hafi verið seldur á uppboði fyrir 4.500 pund sem svarar til rétt tæpra 900 þúsund króna íslenskra. Eins og kunnugt er þá var stjórnmálaleiðtoginn mikill reykingarmaður.

Vindillinn sem nú er til sölu, verður til sýnis á hádegisverðarfundi Churchill klúbbsins sem haldin verður að Nauthóli á morgun laugardaginn 6. október og hefst kl. 12 á hádegi. Þar mun Illugi Jökulsson fjalla um Íslandsheimsókn Churchills sem stóð daglangt, hvað hann gerði, hverja hann hitti og hvaða þýðingu hún hafði. Hádegisverðarfundurinn er öllum opin en skrá þarf þátttöku.

Hægt er að bóka miða á hádegisverðarfundinn hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×