Innlent

Fullur, próflaus og óviðræðuhæfur

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu um klukkan hálf átta í morgun um sérkennilegt aksturslag bifreiðar í austurbænum. Skömmu síðar fannst bifreiðin og rætt var við ökumann sem var ekki var kominn með bílpróf. Hann var sýnilega mjög ölvaður og óviðræðuhæfur af þeim sökum samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni.

Hann var því færður á lögreglustöðina við Hverfisgötu. Ökumaðurinn er einnig grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Að sýnatöku lokinni var ökumaður færður í fangaklefa þar sem hann fær að sofa úr sér mestu vímuna.

Þá var tilkynnt um innbrot í bifreið í Mosfellsbæ í morgun. Hægri framrúða hafði verið brotin og GPS tæki ásamt fylgihlutum stolið. Ekki er vitað hver eða hverjir voru þarna að verki .




Fleiri fréttir

Sjá meira


×