Innlent

Synda boðsund yfir Faxaflóann

BBI skrifar
Mynd/Valli
Fjórar sjósundskonur þreyta þessa stundina hið svokallaða Faxaflóasund, en það er vegalengdin milli Reykjavíkur og Akraness. Konurnar eru allar þaulvanar sjósundskonur og skiptast á að synda í eina klukkustund í senn. Á meðan bíða hinar í bát sem fylgir þeim á leiðinni.

Sundið er 22 km í beinni sjónlínu. Bára og undiralda getur verið talsverð á leiðinni þar sem synt er fyrir opnu hafi. Einnig geta töluverðir straumar hrifsað þær þegar synt er fyrir mynni Hvalfjarðar.

Konurnar lögðu af stað klukkan 10 í morgun og synda án hjálpartækja, þ.e. búninga eða froskalappa. Sundið mun líklega taka 8-10 klukkustundir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×