Innlent

Vilja efla tengsl Alaska og Íslands

BBI skrifar
Mynd/Stefán Karlsson
Á Norðurslóðaþingi sem nú er haldið í Alaska kom fram mikill áhugi á að efla samvinnu Alaska og Íslands. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, átti fundi með ráðamönnum á þinginu.

Fjöldi fyrirtækja telur að áætlunarflug Icelandair muni efla umsvif, skapa ný tengsl og möguleika á samstarfi landanna. Ráðamenn í Alaska vilja einnig læra af reynslu Íslendinga í nýtingu jarðhita. Einnig er áhugi á að efla samstarf háskóla og vísindasamfélaga í löndunum.

Þetta kom fram í tilkynningu frá embætti forseta Íslands.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×