Innlent

Fíkniefnabrotum fjölgar á milli ára - innbrotum fækkar

Eignaspjöllum, fíkniefnabrotum og ölvunarakstri hefur farið fjölgandi á fyrstu fimm mánuðum ársins miðað við sama tímabil á síðasta ári. Fíkniefnabrotunum hefur fjölgað á síðustu tveimur árum. Þannig voru fíkniefnabrotin 577 árið 2010 en 649 árið eftir. Á fyrstu fimm mánuðunum í ár eru þau 851.

Samkvæmt afbrotatíðindum ríkislögreglustjóra þá voru 70% fíknefnabrota vegna vörslu eða meðferðar fíkniefna, 9,5% vegna framleiðslu fíkniefna, 9,5% vegna sölu og/eða dreifingar fíkniefna og 5,5% vegna innflutnings fíkniefna. Um 6% voru „ýmis fíkniefnabrot" en þar undir falla t.d. tilvik þar sem fíkniefni finnast og víðavangi.

Eignaspjöll hafa aukist nokkuð á fyrstu fimm mánuðum þessa árs miðað við sama tímabil á síðasta ári. Þannig fékk lögreglan 724 slík mál inn á sitt borð fyrstu fimm mánuðum síðasta árs. Þau voru hinsvegar 963 á þessu ári. Árið 2010 voru þau aftur á móti 1263.

Líkt og með fíkniefnabrotin þá hafa ölvunarakstursbrotum fjölgað lítillega á síðustu tveimur árum. Þannig voru þau 492 árið 2010. Á síðasta ári voru þau 471 en í ár voru þau 544.

Hið jákvæða er hinsvegar að innbrotum hefur fækkað á milli ára.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×