Sluppu við storminn Sandy Freyr skrifar 1. nóvember 2012 08:00 Hljómsveitin stillir sér upp með gínum í stúdíói Fréttablaðsins. Blouse spilar á Þýska barnum á föstudagskvöld. fréttablaðið/valli
Bandaríska hljómsveitin Blouse vann samkeppni á vegum Reyka Vodka og hlaut að launum flugmiða á Iceland Airwaves-hátíðina. Blouse frá Oregon í Bandaríkjunum spilar á Þýska barnum á föstudagskvöld á Airwaves-hátíðinni. Hljómsveitin vann, ásamt löndum sínum í Vacationer, samkeppni á vegum Reyka Vodka og hlaut að launum flugmiða til Íslands. Blouse spilar afslappað popp með rafrænum áhrifum sem minnir nokkuð á bresku sveitina The xx. Hljómsveitin er skipuð þeim Charlie Hilton, Patrick Adams, Jacob Portrait og Paul Ropber. ?Umboðsmaðurinn okkar sendi okkur tölvupóst og spurði hvort við hefðum áhuga á þessu. Okkur fannst þetta gott tækifæri að geta heimsótt hið ótrúlega Ísland þannig að við gengum frá umsókninni og eiginlega gleymdum þessu svo,? segir Adams. ?Þremur mánuðum seinna fékk ég símtal um að við hefðum verið valin og okkur fannst það mjög spennandi.? Hilton heldur áfram: ?Ísland er eiginlega staður sem allir vilja heimsækja en á endanum gera þeir það kannski ekki. Það er gott að hafa afsökun til að geta farið til Íslands.? Flugferðin hingað gekk vel þrátt fyrir storminn Sandy, enda flugu þau frá Seattle. Vacationer, sem spilar sólríkt danspopp, var ekki eins heppin því hún varð veðurteppt í Fíladelfíu á austurströndinni og komst ekki til landsins á sama tíma. Spurður út í stofnun Blouse árið 2010 segir Adams: ?Ég og Charlie hittumst í skóla. Við vorum bæði í grafískri hönnun í Portland State-háskóla. Við höfðum bæði áhuga á tónlist og vildum spila saman. Ég og Jakob höfðum samið dálítið af tónlist saman og Charlie hafði búið til sólóefni.? Charlie bætir við af samstarfið hafi gengið vandræðalaust fyrir sig. Snemma á síðasta ári gerðu þau útgáfusamning við Captured Tracks frá Brooklyn. Sama ár komu út nokkrar smáskífur frá Blouse og gaf hin fræga útgáfa Sub Pop út eina þeirra, Shadow that May. Í nóvember síðastliðnum kom svo fyrsta breiðskífan út beggja vegna Atlantshafsins og fékk hún góðar viðtökur. Hljómsveitin slær ekki slöku við því upptökur á næstu plötu eru þegar hafnar. Tónleikar Blouse verða á Þýska barnum á föstudagskvöld kl. 23.20. Vacationer spilar í Norðurljósasal Hörpu á laugardagskvöld kl. 23.30.
Mest lesið Hvað veistu um… skák? Lífið Kíkti í kaffi til kanslarans Lífið Sonurinn fékk nafnið Isaiah Ellason Fox Lífið Kavinsky fannst látinn á heimili sínu Lífið Vann með fimm poppstjörnum á einni viku Lífið Glen Hansard látinn eftir mótorhjólaslys Lífið Madison Beer trúlofast NFL-kappa Lífið Skímó á skikkanlegum tíma fyrir ömmur og afa Tónlist Fjórar konur ásaka Leto um refsiverða háttsemi í nýrri heimildarmynd Lífið Sjóðheitur Patrekur Jaime með stórstjörnuteiti Lífið Fleiri fréttir Kíkti í kaffi til kanslarans Hvað veistu um… skák? „Ég hef aldrei brotið kynferðislega á neinum á ævi minni“ Madison Beer trúlofast NFL-kappa Sonurinn fékk nafnið Isaiah Ellason Fox Glen Hansard látinn eftir mótorhjólaslys Kavinsky fannst látinn á heimili sínu Fjórar konur ásaka Leto um refsiverða háttsemi í nýrri heimildarmynd Vann með fimm poppstjörnum á einni viku Sjóðheitur Patrekur Jaime með stórstjörnuteiti Tilraunakennd tískusýning í bílakjallara Safna fjármagni með múrmeldýrum á OnlyFans Gurrý komin aftur á markaðinn Förðunardrottning selur á Framnesvegi „Heimurinn er betur staddur með Höllu sem forseta“ Tíu ár frá greiningunni: „Ég var alltaf ákveðin í að sigrast á meininu“ „Hélt ég myndi aldrei upplifa ást sem þessa“ Bogi Ágústsson á fjölunum sem Sigurjón digri Guðný Ljósbrá og Katrín Björk eignuðust dreng Þýðandi Ódysseifskviðu segir að Nolan eigi að skammast sín Carly Simons lærir að lifa með Parkinson Daði og Árný eiga von á sínu þriðja barni Japanskir sjóliðar troða upp fyrir utan Hörpu Edda Falak og Kristján Helgi selja íbúð í 101 Seyfried syrgir Finn sinn Elegans í hæstu hæðum í fimmtugsafmæli ársins Stjörnulífið: „Heppnasta stelpa allra tíma“ Fundu hvor aðra á ný eftir erfiða reynslu Emma Roberts gengin í það heilaga „Maður getur ekki falið sig á sama hátt þegar allt hárið er farið“ Sjá meira