Vorlína fatamerkisins Freebird verður frumsýnd í Þjóðmenningarhúsinu í dag. Línan er hönnuð af hjónunum Gunnari Hilmarssyni og Kolbrúnu Gunnarsdóttur í samstarfi við bandarískt fyrirtæki.
Sýningin hefst klukkan 17 og er öllum velkomið að sækja hana svo lengi sem pláss leyfir.
Gunnar og Kolbrún hönnuðu áður undir nafninu Andersen & Lauth og að þeirra sögn er Freebird-línan að einhverju leyti innblásin af Viktoríutímabilinu.
Freebird frumsýnt
