Innlent

Samkomulag um hlé á þingstörfum

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Samkomulag hefur náðst á milli formanna flokka á Alþingi um að gera hlé á þingstörfum og verður þeim væntanlega frestað frá og með morgundeginum.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, segir að samkomulagið byggi á yfirlýsingu sem formenn stjórnarflokkanna undirrituðu um fjögurleytið í dag. Það feli í sér að greidd verða atkvæði um frumvarp um veiðileyfagjald núna.

Verði frumvarp um fiskveiðistjórnunarkerfið afgreitt i haust þá verði fallið frá atriðum sem sérfræðingar og fulltrúar sveitastjórna vöruðu mest við. Þá verður rammaáætlun um verndun og nýtingu náttúruauðlinda frestað til haustsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×