Danski prinsinn á kvennafari 14. apríl 2011 04:00 Friðrik prins var á næturbrölti nokkrum dögum fyrir skírn tvíburanna og þótti meira en lítið vinalegur við óþekkta blondínu. Fréttablaðið/AP
Danskir fjölmiðlar fara nú mikinn vegna myndbands sem sýnir Friðrik krónprins láta vel að konu á skemmtistað nokkrum dögum fyrir skírn tvíbura hans. Myndband af hegðun Friðriks krónprins á skemmtistaðnum Simon í Kaupmannahöfn hefur valdið miklu fjaðrafoki í dönskum miðlum. Bæði Ekstrabladet og BT fjölluðu ítarlega um málið á vefsíðum sínum í gær en það var slúðurtímaritið Se og Hör sem fyrst greindi frá málinu og er hægt er að sjá myndbandið á vef Se og Hör. Á myndbandinu sést Friðrik ansi vel við skál á umræddum skemmtistað nokkrum dögum áður en tvíburar hans og dönsku prinsessunnar Mary Donaldson verða skírðir. Það eru þó ekki drykkjusiðir Friðriks sem þykja fréttaefnið heldur sú staðreynd að hann sýnir blondínu nokkuð sérstök vinahót miðað við kvæntan mann, heldur utan um axlir hennar og er meira en lítið kumpánlegur við hana. Eftir að fréttin fór í loftið hafa talsmenn konungshallarinnar rembst eins og rjúpur við staur að tala atvikið niður og starfsmenn skemmtistaðarins reyna nú af öllum mætti að finna hver það var sem tók upp myndbandið. Enda vill staðurinn umfram allt vernda sinn ríkasta og besta viðskiptavin. Vefsíðan MSN Starlounge hefur síðan eftir vinum ljóskunnar að þetta mál sé stormur í vatnsglasi, hún sé góð vinkona bæði Friðriks og Mary og ekkert hafi gerst á þessu pöbbarölti. „Henni þykir leiðinlegt hvernig þetta fór en skemmtistaðarferðin var sárasaklaus." Friðrik hefur alla tíð verið mikill partípinni og var fastur gestur á slúðursíðum dagblaðanna áður en hann gekk í það heilaga. Hann átti meðal annars vingott við undirfatafyrirsætur og poppstjörnur, sem Margréti Þórhildi Danadrottningu fannst ekki nógu fínt fyrir strákinn, en hefur róast eftir að hann gekk í það heilaga með Mary. freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Lífið Bríet sviptir hulunni af kærastanum Lífið Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Lífið Brjálaðar boltamömmur berjast Bíó og sjónvarp Stytta af Charlie Kirk á Times Square Lífið „Undirstaða Hörpu mun hristast undir hreinum og ómenguðum krafti“ Tónlist Fyrsta lesbían til að prýða Playboy Lífið „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Lífið Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Lífið Haaland hunsaði Holland Lífið Fleiri fréttir Stytta af Charlie Kirk á Times Square Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Sjá meira