Stúlkan sem lést í Árbæ neytti eiturefnis 27. maí 2011 07:30 Eiturefnið PMMA er yfirleitt í töfluformi en hefur í einhverjum tilvikum verið mulið niður áður en það er notað.
Bráðabirgðaniðurstöður rannsóknar hafa leitt í ljós að kona um tvítugt sem fannst látin í íbúð í Árbæjarhverfi í Reykjavík hafði neytt fíkniefna sem innihéldu eiturefnið PMMA. Lögregla undirstrikar að endanleg niðurstaða varðandi dánarorsök konunnar liggur ekki fyrir. Vitneskja er að fíkniefna var neytt innandyra þar sem konan lést. Nú þegar hafa fimm tilvik verið staðfest þar sem PMMA kemur við sögu hér á landi. Í þessum fimm tilvikum eiga fjórir einstaklingar hlut að máli. Einn þeirra er maður sem var tekinn fyrir umferðarlagabrot tvisvar sinnum með stuttu millibili og í bæði skiptin kom í ljós að hann var undir áhrifum fíkniefna, sem innihéldu PMMA. Eins og fram hefur komið fannst blandað metamfetamín, sem inniheldur svokallað PMMA og er mjög eitrað, hér á landi í síðasta mánuði. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur unnið að því að koma í veg fyrir frekari dreifingu á efninu og hefur meðal annars framkvæmt sjö húsleitir af þeim sökum. Við þær og fleiri aðgerðir tengdar rannsókninni hefur verið lagt hald á ýmis fíkniefni, þar á meðal PMMA. Ekki er samt hægt að fullyrða að lögreglan hafi komist yfir allt af hinu eitraða efni, sem hingað kom, og því er áfram eindregið varað við því að það kunni enn að vera á markaði hérlendis. Þá er það einnig verulegt áhyggjuefni að PMMA geti borist hingað aftur á nýjan leik, að því er fram kemur í tilkynningu sem lögreglan hefur sent frá sér. - jss
Mest lesið Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Erlent Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Baldur til Eyja Innlent Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Innlent Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Erlent Seltjarnarnes heldur áfram að tapa Innlent Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Erlent „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Innlent Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Svarar fyrir skipulagsbreytingar á framhaldsskólum Bein útsending: Ræða markmiðadrifði hagkerfi í þaula Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Sjá meira