Fá brot gegn börnum fara til lögreglu 14. febrúar 2011 04:00 Á milli eitt og tvö mál sem varða ofbeldi gegn börnum rata inn á borð lögreglu á ári. mynd/úr safni
Árið 2006 bárust barnaverndaryfirvöldum 417 tilkynningar vegna gruns um ofbeldi gegn börnum. Af þeim voru 189 tilvik þar sem grunur lék á að ofbeldið væri af hendi foreldris eða annars umönnunaraðila. Um 156 börn er þar að ræða. Mál fimm þessara barna rötuðu inn á borð lögreglu. Kemur þetta fram í nýrri rannsókn Barnaverndarstofu (BVS). Steinunn Bergmann, félagsráðgjafi hjá BVS, vann rannsóknina og segir hún alvarlegt ofbeldi gegn börnum hér á landi afar fátítt. „Þó að tilkynningum hafi fjölgað í gegnum árin virðist tilvikum ekki hafa fjölgað,“ segir hún. „Það er afar fátítt að málin séu það alvarleg að þau rati inn á borð lögreglu.“ Barnaverndarnefndum um land allt bárust 634 tilkynningar frá heilbrigðisstofnunum um ofbeldi gegn börnum á síðasta ári. BVS fær tilkynningarnar áframsendar en vinnur ekki með einstök mál, heldur eru þau á borði nefndanna. Rannsóknin sem BVS hefur nýlega lokið við beinist einungis að árinu 2006 og einskorðast niðurstöðurnar við það ár. „Við erum að skoða hvort það hafi orðin mikil breyting í tilvikum* eftir tiltekinn tíma,“ segir Steinunn. „Það þarf að rannsaka tölurnar yfir ákveðið langt tímabil.“ Björgvin Björgvinsson aðstoðaryfirlögregluþjónn segir að jafnaði eitt til tvö mál á ári rata inn á borð lögreglu þar sem um ofbeldi gegn börnum sé að ræða. Hann segir ástæðurnar líklega vera þær að barnaverndaryfirvöld séu með hagsmuni barnsins í huga, það er að segja hvort það sé barninu fyrir bestu að draga foreldri eða annan því nákominn fyrir dóm. Í öðru lagi gæti ástæðan verið sú að brotin séu oft á tíðum ekki það alvarleg að þau séu refsiverð. „Alvarlegustu málin koma þó inn á borð til okkar,“ segir Björgvin. „En þau eru oft mjög erfið viðfangs, þótt þau séu fá.“ sunna@frettabladid.is
Mest lesið Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Innlent „Við náðum í hnakkadrambið á þeim“ Innlent Leggja bönn á áfengisneyslu vegna hitabylgjunnar Erlent Lést í umferðarslysi við Vík í Mýrdal Innlent „Það jákvæða við þetta er að þeir verða hundeltir núna“ Innlent „Konur eru svangari, fátækari og örvæntingarfyllri en nokkru sinni fyrr“ Erlent Sjósundsmaður tilkynntur til lögreglu Innlent Flytur sig í starfi um 900 kílómetra Innlent Sagður ætla að tilkynna afsögn á morgun Erlent Ekkert sem bendi til fækkunar fugla við Varmá Innlent Fleiri fréttir „Við náðum í hnakkadrambið á þeim“ Flytur sig í starfi um 900 kílómetra Ekkert sem bendi til fækkunar fugla við Varmá Sjósundsmaður tilkynntur til lögreglu „Það jákvæða við þetta er að þeir verða hundeltir núna“ Árekstur við Seljalandsfoss Lést í umferðarslysi við Vík í Mýrdal Eins til tveggja ára bið eftir ADHD-greiningu: „Ekki spurning að þetta getur haft áhrif á vellíðan og námsárangur“ Mótmæla hvalveiðum Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Bergmál, biðlistar og bongóblíða Hafi ræst úr málum eftir martraðir um 1994 „Minnstu munaði að þetta yrði hennar hinsta ferð“ Þrjár alvarlegar líkamsárásir til rannsóknar: „Puttabrotinn á Sjallanum“ Undarlegt mál á Þingvöllum og þýsk öfgaöfl „Gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf“ Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Hafði fé af mótsgesti HR útskrifaði rúmlega sjö hundruð í dag Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Slysið austan við Vík var alvarlegt Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Aukin hætta á skriðum og grjóthruni Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Til skammar að málið hafi sofnað í meðferð þingsins Fjöldi bíður niðurstöðu og stór stund á Þingvöllum Jensína Edda er Reykvíkingur ársins Sjá meira
Eins til tveggja ára bið eftir ADHD-greiningu: „Ekki spurning að þetta getur haft áhrif á vellíðan og námsárangur“