Hann er fáránlega sætur 28. júní 2011 13:00 María Mjöll heldur mikið upp á Justin Bieber. Hún fylgist reglulega með söngvaranum á Twitter og vonar að einn daginn muni hann „tvíta“ hana til baka. Fréttablaðið/Anton „
Það eru fyrst og fremst sagan hans og lögin sem heilla stelpur, en svo er hann auðvitað alveg fáránlega sætur,“ segir María Mjöll Björnsdóttir, 16 ára Kópavogsmær og einn helsti Justin Bieber-aðdáandi Íslands. María Mjöll hefur verið aðdáandi söngvarans síðan í byrjun árs 2010 og stofnaði hún Twitter-aðgang í þeim tilgangi að fylgjast betur með honum. „Ég fékk mér Twitt-er í ágúst í fyrra og það var svo hinn 18. febrúar sem Justin „elti“ mig til baka,“ segir María Mjöll, en á Twitter getur maður fylgst með hverjum sem er og fengið fylgjendur til baka. Það þykir þó sjaldgæft að fræga fólkið elti aðdáendur sína. „Ég held að ég hafi verið komin með 8-9 þúsund „tvít“ áður en hann elti mig loksins,“ segir María en bætir við að „tvítin“ hafi þó ekki öll verið tileinkuð söngvaranum. María segir að hún hafi kynnst fjölmörgum aðdáendum Biebers á Twitter. „Um leið og hann elti mig birtist ég efst á Twitter-síðunni hans. Í kjölfarið fékk ég um 500 fylgjendur, sem allir voru aðdáendur Justins og höfðu séð mig á Twitter-síðunni hans.“ María hefur þó ekki ennþá fengið svar frá Bieb-er sjálfum, en hann þykir koma vel fram við aðdáendur sína og á það til að svara hörðum aðdáendum á samskiptasíðunni. Söngvarinn ungi olli miklum vonbrigðum hjá stúlkum víðs vegar um heiminn þegar hann viðurkenndi samband sitt við söng- og leikkonuna Selenu Gomez. Hvað finnst fólki almennt um Selenu? „Sumir hata Selenu en aðrir fíla hana. Ég hef ekki mikla skoðun á henni. Ég er ekki þessi Justin Bieber-aðdáandi sem heldur að ég muni giftast honum,“ segir María og hlær. Hún viðurkennir að hún viti um stelpur hér á landi sem séu harðari aðdáendur en hún. María Mjöll stefnir á að komast á tónleika með Bieber. „Ég ætla að reyna að fara á næsta ári. Það voru tónleikar í London núna í mars en mig vantaði ferðafélaga,“ segir María og útskýrir að vinkonur hennar séu ekki jafn miklir Bieb-er-aðdáendur. María segir þó að á Facebook sé að finna hóp íslenskra stúlkna sem tileinkaður sé söngvaranum. „Það er alveg hellingur af stelpum í þessum hóp og við setjum inn fréttir og myndir af Justin og svona. Þessar stelpur hafa líka hist og rætt Justin Bieber en ég hef ekki náð að hitta þær,“ segir María. En hvernig finnst henni íslensku strákarnir í samanburði við Justin Bieber? „Íslensku strákarnir eru náttúrulega sætastir,“ segir María Mjöll að lokum. kristjana@frettabladid.is
Mest lesið Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Lífið Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Lífið David kemur áhugalausri Victoriu til varnar Lífið Ljóðrænt hótel á Akureyri Lífið Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Lífið Selja herrasetur í Þingholtunum Lífið „Drullið ykkur í burtu“ Lífið Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lífið Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Lífið Aldraður og moldaður Tom Cruise til bjargar jörðinni Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Sjá meira