Skiptibókamarkaðirnir mæta þörf 15. febrúar 2011 20:30 Útgefendur hafa áhyggjur af dræmri sölu kennslubóka en bóksalar neita því að skiptimörkuðum sé um að kenna. Mynd/Valli
Skiptibókamarkaðir eru ekki ástæðan fyrir slæmri stöðu á markaði fyrir kennslubækur. Það segir Kjartan Örn Sigurðsson, forstjóri Office 1, sem er meðal þeirra bóksala sem halda úti skiptibókamarkaði allt árið um kring. Í Fréttablaðinu á laugardag voru áhyggjur bókaútgefenda tíundaðar og sagðist Egill Örn Jóhannsson, framkvæmdastjóri Forlagsins, ekki sjá fram á að geta þróað eða gefið út nýjar kennslubækur næstu ár vegna hruns í sölu. Kjartan Örn segir hins vegar að skiptibókamarkaðir verslana séu ekki orsakavaldurinn, og þeir muni alltaf verða til. „Stóra ástæðan bak við vandræði í útgáfu kennslubóka er fámennið á Íslandi. Hér þarf miklu frekar að hugsa til þess að rafbókavæða markaðinn fyrir kennslubækur. Þá er hægt að treysta á miklu minni útgáfu en á prentuðum bókum." Hann segir skiptimarkaði vera svar við kröfum viðskiptavina. „Við erum í miðri kreppu og námsmenn eru athugulir kúnnar sem leita auðvitað að bestu kjörunum hverju sinni. Við stjórnum ekki neytandanum í þessu máli, heldur mætum við þörfinni í samfélaginu." - þj
Tengdar fréttir Grundvöllur útgáfu hruninn Grundvöllur útgáfu námsbóka fyrir framhaldsskóla er hruninn að sögn helstu útgefenda hér á landi. Þeir telja að jafnvel verði ekki þróað eða gefið út námsefni á næstunni. Kristján B. Jónasson, formaður Félags íslenskra bókaútgefenda, segir í samtali við Fréttablaðið að vendipunktur hafi verið í ár. 12. febrúar 2011 13:30 Mest lesið Notaði dulnefni og sveik út vörur fyrir tugi milljóna Innlent Stefnir í fámennari Þjóðhátíð: „Við tökum þetta á langhlaupinu“ Innlent „Þetta voru algjörlega mannleg mistök“ Innlent Erfiðara og erfiðara að lifa mannsæmandi lífi á Íslandi Innlent Gefa upp dánarorsökina vegna „ónákvæmra og rangra frétta“ af andlátinu Erlent Mál Péturs slökkviliðsstjóra komið á borð lögreglu Innlent Ógnvænleg hegðun daglegt brauð: „Það er orðin raunin í þessum bransa“ Innlent „Pólitísk ákvörðun“ hvort hraðinn verði 90 eða 110 Innlent „Ég væri hikandi að hafa börnin mín hjá mér“ Innlent Fór af hjólinu skömmu áður en það brann til kaldra kola á þjóðveginum Innlent Fleiri fréttir „Ég væri hikandi að hafa börnin mín hjá mér“ Bæjarstjóri í beinni, gusumeistari sem biðlar til yfirvalda og sirkus Vísað á brott af hjúkrunarheimilinu í annarlegu ástandi Allt að fjörutíuföld mengun við skemmtiferðaskip Áfram Ísland með opinn fund á Skaganum Lýsa eftir Sæbjörgu Allir sem voru í ökutækjunum uppistandandi eftir áreksturinn „Þetta voru algjörlega mannleg mistök“ Endurskoða sparkvöll við Landakot Notaði dulnefni og sveik út vörur fyrir tugi milljóna „Við erum fyrst og fremst að varða leiðina heim fyrir Grindvíkinga“ Kalla inn próteinpopp „Pólitísk ákvörðun“ hvort hraðinn verði 90 eða 110 Ráðherra með „fráleita hótun“ Stærsti veðmálaviðburður sögunnar nær til ungs fólks Ógnvænleg hegðun daglegt brauð: „Það er orðin raunin í þessum bransa“ Formaður Brunavarna Árnessýslu: Málið litið mjög alvarlegum augum Einfaldur seðill flýtir ekki lokatölum Þúsundir Úkraínumanna mótmæla hrókeringum Selenskís Undirbúningur fyrir þjóðaratkvæði í fullum gangi og hækkun hámarkshraða rædd Klóraði lögreglumann og beit annan Ólafur ráðinn sveitarstjóri Skagastrandar Geri foreldra og börn að lögbrjótum Enginn framhaldsskólakennari meti stöðu nýnema mjög góða Mál Péturs slökkviliðsstjóra komið á borð lögreglu Almar nýr formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga Dró strætóbílstjóra úr sætinu og potaði í augu hans Kalla inn Voga ídýfu vegna vanmerkts ofnæmisvalds MAST hafi farið gegn áliti fagráðs um blóðmerahald Stefnir í fámennari Þjóðhátíð: „Við tökum þetta á langhlaupinu“ Sjá meira
Grundvöllur útgáfu hruninn Grundvöllur útgáfu námsbóka fyrir framhaldsskóla er hruninn að sögn helstu útgefenda hér á landi. Þeir telja að jafnvel verði ekki þróað eða gefið út námsefni á næstunni. Kristján B. Jónasson, formaður Félags íslenskra bókaútgefenda, segir í samtali við Fréttablaðið að vendipunktur hafi verið í ár. 12. febrúar 2011 13:30