Kona Stiegs Larsson til Íslands 9. mars 2011 08:00 Eva Gabrielsson, fyrrum sambýliskona Stiegs Larsson, kemur til Íslands í maí. „
Ég myndi telja að hún hafi margt áhugavert fram að færa. Við hlökkum til að taka á móti henni,“ segir Ilmur Dögg Gísladóttir hjá Norræna húsinu. Eva Gabrielsson, fyrrverandi sambýliskona sænska metsöluhöfundarins sáluga Stiegs Larsson, kemur hingað til lands á höfundakvöld í maí á vegum Norræna hússins í samstarfi við bókaforlagið Bjart. „Okkur fannst hún bæði áhugaverður einstaklingur sem hefur verið mikið í umræðunni í bókmenntaheiminum og við vildum líka hafa ákveðna breidd í dagskránni, gera hana ekki eins dæmigerða,“ segir Ilmur Dögg. Bók Gabrielsson, Millennium, Stieg og ég, hefur verið gefin út í Svíþjóð og Noregi en Bjartur, sem hefur gefið út bækur Stiegs Larsson, ákvað að gefa hana ekki út hér á landi. Í henni fjallar hún um 32 ára samband sitt og Larssons og hinn vinsæla Millennium-þríleik. Einnig ræðir hún um stirð samskipti sín við fjölskyldu Larssons. Vegna sænskra erfðalaga fékk hún engan arf eftir Larsson, sem hefur selt bækur sínar í milljónavís um allan heim. Gabrielsson hefur einnig gefið út bókina Sambo – Ensammare än du tror. Bæði er hægt að leigja þá bók og hina fyrrnefndu á bókasafni Norræna hússins. Höfundakvöldin í Norræna húsinu hefjast 14. apríl og standa yfir til 1. júní. Þar koma fram rithöfundar og ljóðskáld frá Grænlandi, Færeyjum, Svíþjóð, Noregi og Íslandi. - fb
Mest lesið Grafalvarlegt nýtt efni: „Jafn tilgangslausar og að selja flugelda inni í helli“ Tónlist Von á tíu nýjum lögum tíu árum eftir andlátið Tónlist Brjálaðar boltamömmur berjast Bíó og sjónvarp Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Lífið Geislasverð Loga Geimgengils seldist á 470 milljónir Bíó og sjónvarp „Undirstaða Hörpu mun hristast undir hreinum og ómenguðum krafti“ Tónlist Stytta af Charlie Kirk á Times Square Lífið Bríet sviptir hulunni af kærastanum Lífið Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Lífið Sagði Viktoríu Beckham að „fokka sér“ Tónlist Fleiri fréttir Stytta af Charlie Kirk á Times Square Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Sjá meira