Ríkisendurskoðun snuprar ráðherra vegna Árbótarmálsins Jón Hákon Halldórsson skrifar 24. febrúar 2011 10:18 Meðferðarheimilið Árbót í Aðaldal.
Ríkið hefur greitt rekstraraðilum þriggja meðferðarheimila samtals 84 milljónir króna í bætur vegna samningsslita um rekstur heimilanna. Ríkisendurskoðun telur að greiðslurnar orki um margt tvímælis. Þetta kemur fram í skýrslu Ríkisendurskoðunar sem birt var í morgun. Um er að ræða meðferðarheimili að Torfastöðum, Árbót og Götusmiðjuna. Í úttekt Ríkisendurskoðunar segir að samningum við rekstraraðila Árbótar- og Torfastaðaheimilanna hafi verið sagt upp á lögmætan hátt með tilskildum fyrirvara. Því hafi þeir ekki átt rétt á öðrum greiðslum en vegna umsamins uppsagnarfrests. Engu að síður hafi ráðuneyti félagsmála samið um viðbótargreiðslur til þeirra í andstöðu við Barnaverndarstofu. Greiðslan til rekstraraðila Torfastaðaheimilisins byggði á því að framlög til hans hefðu verið lægri en til sambærilegra heimila en greiðslan til rekstraraðila Árbótarheimilisins var rökstudd með vísan til skulda sem stofnað hefði verið til vegna uppbyggingar þess. Ríkisendurskoðun segir að Barnaverndarstofa hafi getað rift samningi við rekstraraðila Götusmiðjunnar í samræmi við ákvæði hans og hefði rekstraraðilinn þá ekki átt rétt á viðbótargreiðslu. Þrátt fyrir þetta hafi stofan kosið að semja um starfslok og greiða laun starfsmanna í tvo mánuði sem og sérstakt framlag vegna skulda rekstraraðilans.Rök skortir fyrir 30 milljóna króna greiðslu Ríkisendurskoðun segir að munur sé á því hvernig fjárhæðir lokagreiðslna til annars vegar rekstraraðila Torfastaðaheimilisins og Götusmiðjunnar og hins vegar Árbótarheimilisins hafi verið fundnar út. Greiðslur til rekstraraðila fyrrnefndu heimilanna hafi tekið mið af útreikningum óháðra aðila en greiðslan til rekstraraðila Árbótarheimilisins hafi verið samningsatriði milli þeirra annars vegar og félagsmálaráðherra og fjármálaráðherra hins vegar. Útreikningur Ríkisendurskoðunar leiði í ljós að við samningsslit hafi rekstraraðilar Árbótarheimilisins ekki setið uppi með eftirstöðvar skulda sem stofnað hafði verið til vegna uppbyggingar þess. Því fær stofnunin ekki séð að málefnaleg rök hafi verið fyrir 30 milljón króna uppgjörsgreiðslu til þeirra. Að mati Ríkisendurskoðunar þurfa stjórnvöld að taka afstöðu til þess hvort tími einkarekinna meðferðarheimila fyrir börn og unglinga sé hugsanlega liðinn vegna breyttra aðstæðna í samfélaginu og nýrra meðferðarúrræða. Verði niðurstaðan sú að áfram skuli samið við slík heimili þarf að tryggja að mögulegar greiðslur til þeirra vegna samningsslita séu gagnsæjar, málefnalegar, byggðar á skráðum reglum, samningum og raunverulegu uppgjöri. Ávallt þarf að ganga úr skugga um að uppsögn þjónustusamnings sé lögmæt áður en til hennar kemur svo ekki verði ágreiningur um það. Þá þarf velferðarráðuneytið að koma á sjálfstæðu ytra eftirliti með framkvæmd samninganna. Enn fremur verða ráðuneytið og Barnaverndarstofa að sporna gegn óeðlilegum afskiptum utanaðkomandi aðila, jafnt stjórnmálamanna sem annarra, að lausn mála. Slík afskipti grafa undan faglegum vinnubrögðum og draga úr tiltrú almennings á stjórnsýslunni.Skortir reglur um nýtingu vistrýma og menntun starfsfólks Fram kemur að nokkrum heimilum hafi verið lokað vegna ófullnægjandi nýtingar. Einnig hafi starfsmenn heimilanna yfirleitt verið ófaglærðir. Ákveði stjórnvöld að halda áfram að semja við einkarekin heimili þarf að mati Ríkisendurskoðunar að setja reglur um lágmarksnýtingu vistrýma og fagmenntun starfsfólks.
Mest lesið Fór af hjólinu skömmu áður en það brann til kaldra kola á þjóðveginum Innlent Gefa upp dánarorsökina vegna „ónákvæmra og rangra frétta“ af andlátinu Erlent Erfiðara og erfiðara að lifa mannsæmandi lífi á Íslandi Innlent „Þetta snýst ekki hreinlega um bann heldur ákveðna vernd“ Innlent Nánast farin að reikna með hitabylgjum fyrir austan Innlent Hefur áhyggjur af smithættu í fargufum Innlent Bandaríkjamenn skjóta á skip sem hugðist leggja við bryggju á Kharg-eyju Erlent Adolf Ingi fékk svar frá Stefáni: „Aumt að skýla sér á bak við Fjölmiðlanefnd“ Innlent Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Erlent „Þetta setti allt úr skorðum fyrir okkur“ Innlent Fleiri fréttir Jafnvel brotist inn þegar fólk er heima Erfiðara og erfiðara að lifa mannsæmandi lífi á Íslandi „Þetta snýst ekki hreinlega um bann heldur ákveðna vernd“ Fór af hjólinu skömmu áður en það brann til kaldra kola á þjóðveginum Nánast farin að reikna með hitabylgjum fyrir austan Ekki öll jafn spennt fyrir boðuðu samfélagsmiðlabanni Hefur áhyggjur af smithættu í fargufum „Þetta setti allt úr skorðum fyrir okkur“ Lögreglan rannsakar enn eitt innbrotið í borginni Varað við hvössum vindstrengjum við fjöll og á heiðum Adolf Ingi fékk svar frá Stefáni: „Aumt að skýla sér á bak við Fjölmiðlanefnd“ Kvöldfréttir Sýnar í heild sinni Tengivagn valt á Vesturlandsvegi Vilja reisa 140 stúdentaíbúðir á Kársnesi Leigubílstjóri stunginn af farþega Ólafur hjá Morgunblaðinu kærður til siðanefndar BÍ Skora á borgaryfirvöld að taka innbrotafaraldurinn föstum tökum Heilbrigðisnefndir verða lagðar niður Sögðu mjólkurfernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu Veita helmingsafslátt af leigunni Íbúafjöldinn fimmfaldast í blíðunni Boðar frekari breytingar „Þó staðan sé ekki góð, þá hefur hún fram að þessu verið ennþá verri“ Fósturbarnakerfið harðlega gagnrýnt og verulega dregið úr umsóknum um alþjóðlega vernd Hafi sýnt stjúpdóttur sinni klám til að réttlæta brot sín Sparkaði í ellefu ára dreng í kjölfar dyraats Fara fram á gæsluvarðhald eftir „stórfellda líkamsárás“ Herjólfur úr leik í fjóra daga þegar nýi mótorinn kemur Ætla að banna samfélagsmiðla fyrir undir fimmtán ára Einn kærður fyrir líkamsárás Sjá meira