Gremja meðal fimmmenninga vegna seinagangs 24. febrúar 2011 12:10 Steinunn Guðbjartsdóttir, formaður slitastjórnar Glitnis. Slitastjórn bankans vildi taka málið upp að nýju því tveir hinna stefndu stóðu ekki við forsendur frávísunar málsins í NY. Seinagangur þeirra varð þess valdandi að dómari féllst á endurupptöku málsins.
Dómari í Glitnis-málinu í New York tók upp málið gegn sjömenningunum öllum vegna þess að tveir þeirra skiluðu ekki yfirlýsingum til dómstólsins á réttum tíma. Það voru Pálmi Haraldsson og Hannes Smárason. Hinir fimm eru gramir vegna þessarar þróunar. Málið er endurupptekið í New York því Hannes Smárason og Pálmi Haraldsson skrifuðu ekki undir yfirlýsingu um að ef á Íslandi félli dómur slitastjórn Glitnis í hag væri dómurinn aðfararhæfur í Bandaríkjunum, þ.e að hægt væri að ganga að eignum þeirra þar í landi til að fullnusta dóminn. Fyrir vikið var málið tekið upp að nýju. Dómarinn í New York gerði þá kröfu að sjömenningarnir skyldu allir skrifa undir yfirlýsinguna. Slík yfirlýsing hefur grundvallarþýðingu því dómar á Íslandi eru ekki aðfararhæfir í Bandaríkjunum. Til að dómar, sem falla í erlendum ríkjum, séu aðfararhæfir þarf að vera fyrir hendi samningur þess efnis. Slíkur samningur er í gildi milli langflestra Evrópuríkja, en ekki á milli Íslands og Bandaríkjanna. Fréttastofan hefur heimildir fyrir því að töluverð gremja sé vegna málsins hjá hinum sem skrifuðu undir yfirlýsinguna og skiluðu henni á réttum tíma, en það eru þau Jón Ásgeir Jóhannesson, Ingibjörg Pálmasdóttir, Þorsteinn M. Jónsson, Jón Sigurðsson og Lárus Welding, en eftir því sem fréttastofa kemst næst vilja menn ekki tjá sig um málið opinberlega fyrr en þeir hafa ráðfært sig við lögmenn sína. Fréttastofa sendi lögmanni Hannesar Smárasonar á Íslandi, fyrirspurn um málið í morgun, en engin svör fengust. Þá hefur ekki náðst í Pálma Haraldsson. thorbjorn@stod2.is
Mest lesið Önnur sprunga opnast Innlent Að ráðast, eða ráðast ekki, á Moskvu Erlent Leggur til að frídögum verði fækkað um tvo Erlent Dómstóll ESB staðfestir niðurstöðu varðandi vörumerkið Iceland Innlent Fallegt og ekkert smágos Innlent Fundu tennur í aftursætinu á bílaþvottastöð Innlent Hyggst ekki segja af sér þrátt fyrir reiði vegna Epstein-listans Erlent Handtekin fyrir að stunda kynlíf með munkum og kúga af þeim fé Erlent Fyrst vöruskemman, nú göngustígar: „Mórallinn er bara ömurlegur“ Innlent Skoða hvort gosið breyti heimsókn von der Leyen Innlent Fleiri fréttir Gengu að gosinu og óku til Grindavíkur án þess að vera stöðvaðar Fundu tennur í aftursætinu á bílaþvottastöð Landa í Grindavíkurhöfn og botna ekkert í lokunum Mikið eldingaveður á Vestfjörðum Eldgosið í heimsmiðlunum: „Ísland: Rýmt“ Enn eitt gosið hafið og íbúar tala um Groundhog Day Kæmi mér ekki á óvart að þetta væri síðasta Sundhnúkagosið Fyrst vöruskemman, nú göngustígar: „Mórallinn er bara ömurlegur“ Skoða hvort gosið breyti heimsókn von der Leyen Dómstóll ESB staðfestir niðurstöðu varðandi vörumerkið Iceland Fallegt og ekkert smágos Önnur sprunga opnast Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Göngumaður slapp ómeiddur úr sjálfheldu við Hestskarð Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni „Ekki bara fávísir hitabeltisbúar sem eru að detta á hausinn“ Yfirleitt Íslendingar sem aki utan vega Skipstjóri handtekinn talinn vera undir áhrifum „Ég var örugglega getinn í Land Rover“ „Valda fleiri húðkrabbameinum en sígarettur lungnakrabbameini“ Göngumaður í sjálfheldu við Hestskarð Ákall um ljósabekkjabann og gengið fyrir Ólöfu Töru Enn rís land í Svartsengi Engu mátti muna á að alvarlegur árekstur yrði á þjóðveginum Hleypti líklega óvart úr Kominn úr lífshættu eftir stunguárás við Mjóddina Gísli Jóns í tveimur útköllum frá miðnætti „Það gæti tekið bara fimmtán mínútur að kála þeim“ Maðurinn er fundinn Ekki sekur um að hafa valdið dauða manns í Kiðjabergi Sjá meira