Stjórnlagaráð tilraun til þess að víkja sér undan dómi Hæstaréttar 24. febrúar 2011 17:41 Birgir Ármannsson „
Skipun einhvers konar stjórnlagaráðs, með þeim einstaklingum sem fengu á sínum tíma útgefin kjörbréf í kjölfar hinna ógildu kosninga í nóvember, væri augljóslega tilraun til að víkja sér undan niðurstöðu Hæstaréttar og því ekki tæk leið í stöðunni," segir Birgir Ármansson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fulltrúi flokksins í samráðsnefnd um viðbrögð við ákvörðun Hæstaréttar um ógildingu kosninga til stjórnlagaþings. Birgir lagði fram bókun í nefndinni þar sem fram kom að Sjálfstæðisflokkurinn teldi brýnt að endurskoða stjórnarskrána og styður slíka endurskoðun. Samkvæmt gildandi stjórnarskrá er Alþingi stjórnlagaþing og getur eitt breytt stjórnarskrá og má ekki víkja sér undan þeirri ábyrgð, enda ekki ástæða til, segir í bókuninni. Svo segir í bókuninni: „Eftir það klúður við framkvæmd kosninga til stjórnlagaþings skv. l. 90/2010, sem leiddi til ógildingar kosninganna í Hæstarétti, telur undirritaður fulltrúi Sjálfstæðisflokksins að ekki eigi að halda áfram með hugmyndir um ráðgefandi stjórnlagaþing með tilheyrandi kostnaði og leggur til að haldið verði áfram starfi stjórnlaganefndar, þ.e. að safna gögnum um stjórnarskrármál og setja fram hugmyndir um breytingar á stjórnarskrá og útfærslu þeirra. Jafnframt hvetur undirritaður til þess að frekari undirbúningur að endurskoðun stjórnarskrárinnar verði styrktur með almennri umræðu í samfélaginu og rannsóknum á stjórnarskrármálum, um leið og leitað verði ráðgjafar innlendra og erlendra sérfræðinga. Sú vinna verði á forræði Alþingis."
Mest lesið Þjóðvarðlið virkjað eftir að ICE skaut mann til bana Erlent Munaði litlu að nýliði skákaði borgarstjóra Innlent Gríðarleg vonbrigði að reyndri konu sé ekki treyst Innlent „Eftir þetta getur enginn treyst honum“ Erlent Stóra verkefnið að vinna aftur traust borgarbúa Innlent Tvöfalt fleiri aldraðir leituðu hjálpar vegna ofbeldis Innlent Annar maður skotinn til bana af ICE Erlent Samfylkingin valdi sér borgarstjóraefni Innlent Stigmögnun í nágrannaerjum: „Hann vildi keyra á mig“ Innlent Valið á milli gömlu og nýju Samfylkingarinnar Innlent Fleiri fréttir Munaði litlu að nýliði skákaði borgarstjóra Stóra verkefnið að vinna aftur traust borgarbúa Gríðarleg vonbrigði að reyndri konu sé ekki treyst Pétur Marteinsson kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík Samfylkingin valdi sér borgarstjóraefni Valið á milli gömlu og nýju Samfylkingarinnar Gullhúðað afnám jafnlaunavottunar Tvöfalt fleiri aldraðir leituðu hjálpar vegna ofbeldis Vandræðagangur með skilaboð á versta tíma fyrir Heiðu Leita að öðrum til að taka við Ísafjarðarfluginu Allir hafi áhuga á Íslandi Biður Dóru Björt afsökunar eftir deilur um vetrarþjónustu Þrjátíu prósent Samfylkingarfélaga greitt atkvæði það sem af er Algengast að börn beiti foreldra sína ofbeldi og prófkjör Samfylkingarinnar „Enda ekki í nokkru einasta ástandi til að vera meðal fólks“ Árásarmaðurinn svartklæddi reyndist vera ættingi Stigmögnun í nágrannaerjum: „Hann vildi keyra á mig“ Gengst nú við skilaboðunum umdeildu Hægt að nálgast vottorð um að makinn hafi rangt fyrir sér Um 900 manns nú með lögheimili í Grindavík „Það átti að taka mig í karphúsið“ Selenskí undir miklum þrýstingi Tímamótaviðræður hafnar og ögurstund hjá Samfylkingunni Eldur í sendibíl á Miklubraut Arnar Grétarsson í stjórnmálin Gjörbreytt Langahlíð fyrir milljarð Segist ekki muna eftir að hafa sent skilaboðin „Einhver SA prins mættur til að láta sem allt sé bara kózý“ Endurtekin og alvarleg mál valda áhyggjum Hiti færist í leikinn: „Frægur karl með enga reynslu“ Sjá meira