Innlent

Herjólfur siglir frá Þorlákshöfn á morgun

Herjólfur
Herjólfur
Herjólfur mun sigla til Þorlákshafnar mánudaginn 7. nóv. sökum þess að ölduspá fyrir Landeyjahöfn er óhagstæð.

Gert er ráð fyrir því að siglt verði frá Vestmannaeyjum kl 8:00 og 15:30 og frá Þorlákshöfn kl 11:45 og 19:15.

Athygli er þó vakin á því að aðstæður geti breyst hratt og við þeim verður brugðist. Verði einhverjar breytingar á áætlun verða þær tilkynntar á morgun.



Farþegar eru vinsamlega beðnir að fylgjast með fréttum á herjolfur.is, facebook síðu Herjólfs og síðu 415 í Textavarpi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×