Varð óvænt andlit Stalinskaya vodka 3. mars 2011 11:30 Halli Hansen ásamt Bryndísi Gyðu Michelsen og Evu Eiríksdóttur sem léku ásamt honum í auglýsingunni uppi á Langjökli. „
Þetta var mjög gaman, en ég lék aðalhlutverkið umkringdur föngulegu kvenfólki," segir athafnamaðurinn Halli Hansen. Auglýsing fyrir rúmenska Stalinskaya vodkann var tekin upp á Langjökli í vikunni. Erlendir framleiðendur unnu verkefnið í samstarfi við íslenska og var búið að finna þrjá leikara, sem áttu allir á einhverjum tímapunkti að fara með aðalhlutverkið. Erlendu framleiðendurnir voru hins vegar aldrei nógu ánægðir með þá, en tóku þá eftir Halla, sem var staðsetningarstjóri (e. location manager) verkefnisins. „Ég var þarna á tökustað að laga bílinn sem ég var á og það gusast sjálfskiptingarolía yfir andlitið á mér. Þá sáu þeir einhvern veginn að ég væri rétti maðurinn í verkefnið," segir Halli. „Það má því segja að ég sé andlit Stalinskaya vodkans í dag. Þetta kom allt mjög tilviljunarkennt upp. Þeir sáu skemmtilegt blik í auga, gripu andann á lofti og sögðu að ég væri maðurinn sem búið var að leita að allan tímann."Aðstæður voru mjög erfiðar uppi á jöklinum, en erlendu framleiðendurnir voru ánægðir með íslenska teymið, sem Halli segir að hafi staðið sig gríðarlega vel. Halli er klæddur í selskinn í auglýsingunni, sem hefst á því að hann er að draga hundasleða. „Svo rekst ég á úlfahjörð, beiti svipunni á þá, tem þá á staðnum og rúlla af stað," segir hann. Bar var komið fyrir inni í íshelli á Langjökli sem Halli brunar inn í með fullan sleða af rúmenska vodkanum. „Og í beinu framhaldi af því skapast einstaklega skemmtilegt og lifandi andrúmsloft á milli mín og kvenfólksins þarna inni," segir Halli að lokum. „Eins og gerist iðulega þegar aðalsöguhetjan mætir á svæðið." atlifannar@frettabladid.is
Mest lesið „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Tónlist Pétur og Birgitta nýtt par Lífið Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Lífið Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti Lífið Sigrún Ósk mætt á RÚV Lífið TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Lífið Lifandi menning í hjarta Hafnarfjarðar Lífið samstarf Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Lífið Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Lífið Hvað veistu um... gönguleiðir? Lífið Fleiri fréttir Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Hélt allsherjar skilnaðarpartý: „Ég er frjáls“ Lést eftir mislukkaða typpastækkun í Taílandi „Brúðkaup aldarinnar“ hjá Önnu Fríðu og Sverri Stjörnulífið: Undir hárlengingum og bótoxi leynist íslenskur karlmaður Sjá meira