Fegurðardís vinsæl á Facebook 3. mars 2011 10:00 Sigríður Dagbjört Ásgeirsdóttir, Ungfrú Reykjavík. Fréttablaðið/Valli „
Það vilja allir vera vinir manns," segir Sigríður Dagbjört Ásgeirsdóttir, Ungfrú Reykjavík, sem hefur ekki undan að samþykkja vinabeiðnir á Facebook. „Maður samþykkir flesta en ég skoða samt vel og vandlega hverjum ég er að hleypa inn á Facebook." Hún er á lausu og viðurkennir að einhverjir hafi reynt við sig eftir að titillinn var í höfn. „Það hefur verið eitthvað um það en ekkert rosalega mikið." Sigríður Dagbjört, sem er tvítug Kópavogsmær, hefur svifið um á bleiku skýi undanfarna daga eftir sigurinn í Ungfrú Reykjavík. Þangað til undirbúningur fyrir Ungfrú Ísland hefst ætlar hún þó að einbeita sér að náminu í viðskiptafræði við Verslunarskóla Íslands. Þar er hún á lokaári og útskrifast einmitt daginn eftir að Ungfrú Ísland verður krýnd á Broadway 20. maí. „Ég ætla að taka því rólega núna í byrjun mars og svo fer maður að byrja aftur í svipuðu prógrammi. Þá kíkir maður í ræktina þegar maður getur og reynir sérstaklega að borða hollt," segir hún. Fegurðardísin hefur í nógu að snúa þessa dagana sem formaður nemendamótsnefndar Versló því verið er að setja upp söngleikinn Draumurinn. Sigurinn í Ungfrú Reykjavík kom henni í opna skjöldu. „Auðvitað. Það sést líka á myndbandinu. Ég er alveg í sjokki þar. Ég bjóst ekki við þessu og var farin að hugsa hver myndi eiginlega vinna þetta þegar það var búið að setja í þriðja og annað sætið." Á ekki að stefna að sigri í næstu keppni? „Ég ætla bara að gera mitt besta. Ég held að það sé ekkert annað sem ég get gert." - fb
Mest lesið Konur að fæða börn á bakinu ... fyrir karlmenn Áskorun „Það er enginn að fara senda þig í stríð“ Lífið Björk treður upp í Hafnarfirði í sumar Tónlist Ólétt af fyrsta barni ári eftir andlát fyrrverandi Bíó og sjónvarp Pétur Geir opnar nýja vinnustofu með einkasýningu Menning Rúrik í næstvinsælustu Netflix mynd í heimi Bíó og sjónvarp Eftir á fyndið að vera stönguð niður af kind Lífið Euphoria stjörnurnar gáfu ekkert eftir Tíska og hönnun Furðubandið sem tryllti netið Lífið The Streets koma fram á Iceland Airwaves Lífið Fleiri fréttir Söfnuðu kleinuhringjum ofan í fötu með skrautlegri aðferð Algengur misskilningur að hávært fólk sé með mesta sjálfstraustið The Streets koma fram á Iceland Airwaves „Það er enginn að fara senda þig í stríð“ Aflýsa Wireless eftir að Kanye var meinað að fara til Bretlands Mos Def kemur fram í Gamla Bíó í maí Eftir á fyndið að vera stönguð niður af kind Ráðherrabarn komið í heiminn Furðubandið sem tryllti netið Móðir drengs í ofbeldissambandi opnar sig Offset skotinn við spilavíti í Flórída „Ekki óttast mistök, en vertu skíthrædd við eftirsjá“ Ye á Wireless: Styrktaraðilar hætta við og forsætisráðherrann blandar sér í málið Stjörnulífið: „Sannleikurinn er sexí“ Skagarokk: Boða til Black Sabbath messu og tónlistarveislu næstu helgi Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur „Við erum öll nóg“ „Sjálfsvinna er ævistarf“ „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ „Þetta gekk eins og í lygasögu“ „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ „Ég ræð ferðinni“ Jökull og Telma hvort í sína áttina „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ „Fegurð er miklu meira en bara útlit“ Stórum hluta kærunnar vísað frá Íslandsvinurinn Gucci Mane frelsissviptur Birnir á lag ársins Myndaveisla: Hundar og kettir velkomnir síðan árið 2017 „Enginn skömm að því að leita sér hjálpar“ Sjá meira