Fá leyfi til að leika sér 3. mars 2011 12:00
Hall Pass heitir nýjasta mynd Farrelly-bræðra. Hún fjallar um vini sem fá leyfi frá eiginkonum sínum til að gera hvað sem þeir vilja í eina viku. Nýjasta gamanmynd Farrelly-bræðra, Hall Pass, verður frumsýnd á morgun. Hún fór beint á toppinn vestanhafs en með aðalhlutverk fara Owen Wilson og Jason Sudeikis. Myndin fjallar um vinina Rick og Fred, sem hafa báðir verið kvæntir í mörg ár. Þegar þeir verða eirðarlausir heima fyrir taka eiginkonur þeirra djarfa ákvörðun til að bjarga hjónaböndum sínum. Þær veita þeim grænt ljós í eina viku til að gera hvað sem þeir vilja, án nokkurra útskýringa eða eftirmála. Í fyrstu er þetta draumi líkast fyrir Rick og Fred en ekki líður á löngu þar til þeir uppgötva að væntingar þeirra til lífsins og þeirra sjálfra eru algjörlega úr takti við raunveruleikann. 2011 verður að öllum líkindum stórt ár fyrir Owen Wilson því auk þess að leika í Hall Pass leikur hann í How Do You Know, sem var frumsýnd í febrúar á Íslandi. Einnig talar hann fyrir Lightning McQueen í Cars 2 og leikur í gamanmyndinni The Big Year, en þær verða báðar frumsýndar síðar á árinu. Jason Sudeikis hefur skotist hratt á stjörnuhimininn. Hans fyrsta kvikmynd var The Ten árið 2007. Auk þess hefur hann verið meðal leikara í Saturday Night Live frá 2003 og í gamanþáttunum 30 Rock. Þær Christina Applegate og Jenna Fischer leika eiginkonurnar í Hall Pass. Báðar slógu þær í gegn í sjónvarpsþáttum, Applegate í Married with Children og Fischer í hinum bráðfyndnu The Office. Farrelly-bræður eru meðal þekktustu grínleikstjóra Hollywood. Þrátt fyrir að síðustu myndir þeirra hafi fengið misjafnar viðtökur hafa þeir á ferilskránni grínbombur á borð við There's Something about Mary, Dumb & Dumber, Kingpin og Me, Myself & Irene. Þrjú ár eru liðin síðan síðasta mynd þeirra, The Heartbreak Kid með Ben Stiller í aðalhlutverki, kom út. Næsta verkefni þeirra er The Three Stooges sem er kemur út á næsta ári með Benicio Del Toro og Richard Jenkins í aðalhlutverkum. freyr@frettabladid.is
Mest lesið Reyndist sannspár um koss dauðans Lífið Stórmynd Sádanna stefnir í stærsta flopp sögunnar Bíó og sjónvarp Michael nær ekki að fela fílinn í herberginu Gagnrýni Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga Lífið „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Lífið Bestu kvikmyndir 21. aldarinnar Bíó og sjónvarp Britney ákærð fyrir ölvunarakstur Lífið Stór brjóst eru stór Lífið Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Lífið Guðjón Friðriksson heiðursborgari Reykjavíkur Menning Fleiri fréttir Oddvitaáskorunin: Að stöðva Borgarlínuna efst á lista Reyndist sannspár um koss dauðans Britney ákærð fyrir ölvunarakstur „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Oddvitaáskorunin: „Sérvitur sveitavargur“ Stór brjóst eru stór Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Fengu Dern í stað Bonham Carter Jóhann Alfreð með púlsmæli og fékk að finna fyrir því Úrslitakvöld Eurovision verður í beinni á Rúv 2 Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Dorrit djammaði með Adwoa Aboah á Sikiley Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Oddvitaáskorunin: Besti landsbyggðarandinn þrátt fyrir fjölmenni Sigur Rós spilar í 100 ára afmæli Attenboroughs Andar sig reyklaus í gegnum kosningabaráttuna Ókunnug kona í salnum lifði sig gríðarlega inn í þáttinn Adam fór á skeljarnar í Kerlingarfjöllum Mínusmeðlimir fóru yfir rugltímann: „Ekki drukkið í fimmtán ár“ Albert keypti þakíbúð á hálfan milljarð Höguðu sér vel á árshátíð Haga Útför Björgvins Halldórssonar Athafnakona selur draumaíbúð í Hlíðunum Sjá meira