Lögregla óttast stríð Vítisengla og Útlaga 3. mars 2011 08:00
Lögregla óttast nú að það stefni hraðbyri í átök eða uppgjör hér á landi á milli áhangendaklúbba tveggja stærstu vélhjólagengja veraldar, Hells Angels og Outlaws. Þetta er ein meginástæða þess að nú er í smíðum í innanríkisráðuneytinu frumvarp til laga sem veita á lögreglunni víðtækari heimildir til að rannsaka skipulagða glæpastarfsemi. Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra vill efla lögregluna til að taka á starfsemi glæpahópanna. Klúbbarnir tveir eru MC Iceland og MC Black Pistons. Síðarnefndu samtökin eru tiltölulega ný af nálinni hér á landi og voru stofnuð til höfuðs MC Iceland. MC Iceland hafa verið starfrækt hér lengi, fyrst undir merkjum Fáfnis. Þau hafa sótt um aðild að Hells Angels, eða Vítisenglum, sem starfrækt eru víða um heim. Allt þykir benda til þess að þau verði fullgildir meðlimir innan tíðar. MC Black Pistons eru hins vegar stuðningssamtök bifhjólasamtakanna Outlaws, sem starfa einnig í mörgum löndum og hafa lengi tekist á við Hells Angels um yfirráð á sviðum skipulagðrar glæpastarfsemi. Stofnun MC Black Pistons hér á landi er runnin frá Noregi. Á síðasta ári varð Jón Trausti Lúthersson fullgildur meðlimur í MC Black Pistons þar ytra. Hann hafði skömmu áður hrökklast úr formannsembætti í Fáfni. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins stóð hann að stofnun Black Pistons hér á landi, en fer þó ekki með stjórn klúbbsins enda búsettur í Noregi. Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra ræddi skipulagða glæpastarfsemi á Alþingi í gær. Hann sagði allt benda til að hún færðist óðum í vöxt. „Hér erum við að tala um fíkniefnasölu, mansal, peningaþvætti, vopnasmygl, vopnasölu og fjárkúgun af grófustu grófustu sort," sagði Ögmundur. „Öðru hvoru fáum við innsýn í þennan ljóta heim í gegnum fjölmiðla og er ég sannfærður um að við sem hér tökum til máls tölum fyrir hönd Íslendinga almennt um að þetta er samfélag sem við ekki viljum og ætlum ekki að líða."
Mest lesið Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Innlent Árekstur á Suðurlandsbraut Innlent Noregur hyggst innleiða samfélagsmiðlabann Erlent Jarðskjálfti við Kleifarvatn Innlent Frumkvæðisvinna lögreglu að loka fjórum afhendingarstöðum Innlent Leita í rústum íbúðahúsa Erlent Brenndu rangt lík Erlent Röð stunguárása í neðanjarðarlestinni Erlent Ísrael viðurkennir sjálfstæði Sómalílands fyrst allra landa Erlent Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Innlent Fleiri fréttir Frumkvæðisvinna lögreglu að loka fjórum afhendingarstöðum „Fara þarf í raunverulegar aðgerðir“ Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Kjartan sækist ekki eftir endurráðningu sem bæjarstjóri Landeldi í vexti og lögregla lokar áfengisverslunum Árekstur á Suðurlandsbraut Ekki talinn tengjast aukinni eldvirkni Handteknir grunaðir um framleiðslu fíkniefna Jarðskjálfti við Kleifarvatn Lögreglumenn eltu lausa hesta Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Hafði komið sér fyrir á háalofti hótels Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Umferðin róleg í kirkjugörðunum Töpuðu tæpum hundrað milljónum Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Þörf á að skerpa á verklagi spítalans í heimilisofbeldismálum Engin jólamessa vegna rafmagnsleysis Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Sjá meira