Lífið

Stolt af appelsínuhúðinni

MYNDIR/Cover Media og Life&Style
Fyrrum Playboykanínan Holly Madison, 32 ára, prýðir forsíðu tímaritsins Life & Style þessa vikuna ásamt Kim Kardashian eins og sjá má í meðfylgjandi myndasafni. Þar ræðir Holly opinskátt um líkama sinn og þá sér í lagi appelsínuhúðina en í blaðinu er mynd af henni léttklæddri sem ekki er búið að laga til með tölvutækninni.

„Ég vil frekar vera í þyngri kantinum með mjúkar línur heldur en þvengmjó með engar kvenlegar línur. Ég er stolt af líkama mínum," segir Holly.

„Já ég er með appelsínuhúð. Meira að segja þegar ég var sem grennst þá var ég með appelsínúð líka. Eftir að ég flutti til Las Vegas bjó ég á hótelsvítu þar sem ég pantaði alltaf mat upp á herbergi. Ég elska mat allt of mikið til að vera stöðugt í megrun. Franskar kartöflur eru uppáhaldið mitt."

„Ég hef alltaf verið með flottan afturenda og kýs að halda honum með appelsínuhúð og öllu sem honum fylgir," segir hún einnig.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.