Þorbjörg sat hjá við afgreiðslu skólatillagna Jón Hákon Halldórsson skrifar 3. mars 2011 17:04
Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í starfshópi um sameiningu og samrekstur í skólakerfinu, Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, sat hjá við afgreiðslu skýrslu starfshópsins. Tillögurnar voru afgreiddar í borgarráði í dag. Þorbjörg Helga telur að fjárhagslegur ávinningur af tillögunum sé of lítill miðað við það rask á skólastarfi sem þær hafa í för með sér. Borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins segist í yfirlýsingu ekki telja hægt að réttlæta að tillögurnar sem settar eru fram í skýrslunni séu settar í vinnuferli miðað við þann litla fjárhagslega ávinning sem þær skila. Sjálfstæðismenn segja að hagræðing af sameiningu og samrekstri sé samtals aðeins um hálft prósent af heildarútgjöldum þeirra þriggja sviða sem unnu að skýrslunni þegar tillögur verði að fullu komnar til framkvæmda. „Sá litli fjárhagslegi ávinningur sem af þessu hlýst er dýru verði keyptur ef rót í skólum borgarinnar á viðkvæmum tímum í efnahagslífinu verður langvarandi. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins hafa ítrekað bent á það að eins stórtækar tillögur og þessar eiga að vinnast í nánu samstarfi við foreldra og starfsfólk. Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins hafa ítrekað lagt fram tillögur um slíkt, allt frá því sl. sumar en meirihlutinn hefur ekki verið reiðubúinn í slíka vinnu sem hefði getað leitt til góðrar sáttar um mikilvæg skref í skólastarfi. Það eru þessi vinnubrögð og þetta virðingarleysi sem valda því að niðurstaðan nú er ómarkviss, tilviljanakennd og án nokkrar faglegrar framtíðarsýnar um þróun góðs skólastarfs fyrir börnin í borginni," segja sjálfstæðismenn í yfirlýsingu. Sjálfstæðismenn segja þó að tillögurnar í skýrslunni séu ekki allar alslæmar, en á heildina litið sé óvissan og óöryggið sem þessi framkvæmd muni skapa í heild mikil, fjárhagslegi ávinningurinn afar óljós og faglegi ávinningurinn enginn.
Mest lesið Kourani farinn úr landi Innlent Systir Haraldar er látin Erlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla Innlent Fleiri fréttir Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Sjá meira