Innlent

Klónaræktun í Grasagarðinum

Grasagarður Reykjavíkur og Erfðanefnd landbúnaðarins hafa gert með sér samning um að Grasagarðurinn varðveiti safn rabarbaraklóna sem lengi hafa verið í ræktun á Íslandi. Með undirritun samningsins er plöntunum tryggður vaxtarstaður til framtíðar, segir í tilkynningu.

Erfðanefnd landbúnaðarins leggur áherslu á að leita eftir samstarfi við grasagarða og byggðasöfn til að varðveita gamlar íslenskar nytjaplöntur í klónasöfnum. Í Grasagarðinum eru varðveittir sextán klónar af rabarbara, þar af eru sjö íslenskir.- sv




Fleiri fréttir

Sjá meira


×