Leitað að norrænum Gillzenegger 23. apríl 2011 14:00 Kristófer Dignus á að vera byrjaður að skrifa handritið að Lífsleikni Gillz en miðað við tölvuskjáinn gengur honum eitthvað erfiðlega að koma sér að verki. Fréttablaðið/Stefán „
Ég veit ekki hversu langt á veg þetta er komið en það eru einhverjar þreifingar í gangi," segir Kristófer Dignus, handritshöfundur og einn af prímusmótorunum á bakvið sjónvarpsþættina Mannasiði Gillz. Sjónvarpsstöðvar af Norðurlöndunum hafa sýnt „formati" þáttanna áhuga og því ekki útilokað að skandinavískar útgáfur af Agli Gillzenegger muni líta dagsins ljós í náinni framtíð. „Það er mikil „format"-menning í gangi á Norðurlöndunum, menn spara sér tíma og fyrirhöfn með því að þurfa ekki alltaf að vera finna upp hjólið og nýta sér sniðugar hugmyndir," segir Kristófer. Mannasiðirnir nutu töluverða vinsælda hjá sjónvarpsáhorfendum og Kristófer viðurkennir að það hafi verið sérstaklega ánægjulegt fyrir sig að þættirnir brúuðu kynslóðubilið, foreldrar og börn horfðu á þættina saman. Kristófer er byrjaður að skrifa handrit að næstu seríu sem verður unnin upp úr Lífsleikni, bók Gillz sem kom út fyrir síðustu jól. Kristófer segir þá þáttaröð verða svipaða og Mannasiðirnir. „Við viljum hins vegar auka vægi leikna hlutans en minnka stúdíó-hlutann. Semsagt minnka vægi Gillz," útskýrir Kristófer en bætir því strax við að kraftajötuninn sé sjálfur sáttur við það. „Við viljum náttúrlega líka auka leikna hlutann með Gillz, þar sem hann fer yfir hlutina með rasshausunum sínum og sýnir þeim hvernig á að gera hlutina." Ráðgert er að tökur á Lífsleikni Gillz hefjist í haust og verði síðan teknir til sýningar á Stöð 2 eftir áramót. -fgg
Mest lesið Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Lífið Bríet sviptir hulunni af kærastanum Lífið Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Lífið Brjálaðar boltamömmur berjast Bíó og sjónvarp Stytta af Charlie Kirk á Times Square Lífið „Undirstaða Hörpu mun hristast undir hreinum og ómenguðum krafti“ Tónlist Fyrsta lesbían til að prýða Playboy Lífið „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Lífið Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Lífið Haaland hunsaði Holland Lífið Fleiri fréttir Stytta af Charlie Kirk á Times Square Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Sjá meira