Svafa Grönfeldt: Vissi ekki af þessum málum þá 11. febrúar 2011 16:15 Svafa Grönfeldt segir að stutt sé síðan hún vissi af þeim málum sem tilgreind eru í bréfinu frá skilanefnd og slitastjórn Landsbankans. „
Mér hefur borist bréf skilanefndar og slitastjórnar bankans, þar sem óskað er eftir sjónarmiðum mínum og skýringum varðandi tiltekin viðskipti sem ég hafði ekki vitneskju um að fram hefðu farið og voru aldrei borin undir mig, hvorki á fundum í bankaráði eða annars staðar," segir Svafa Grönfeldt í tilkynningu sem hún hefur sent frá sér í tilefni af umfjöllun fjölmiðla um bréf sem skilanefnd og slitastjórn Landsbanka Íslands hafa sent fyrrum stjórnarmönnum bankans. „Ég árétta að þau mál sem tilgreind eru í bréfinu sem að ofan greinir vissi ég ekki um fyrr en nú fyrir skemmstu. Nú er mér ætlað að skýra sjónarmið mín varðandi hugsanlega bótaábyrgð á tjóni sem bankinn varð fyrir vegna aðgerða stjórnenda hans á síðustu klukkutímum fyrir fall hans. Það mun ég gera, en meðan þau mál eru til athugunar hjá skilanefnd og slitastjórn bankans get ég eðli málsins samkvæmt ekki tjáð mig um þau opinberlega," segir Svafa. Hún sat í bankaráði Landsbankans haustið 2008 þegar íslensku viðskiptabankarnir féllu og segir hún það hafa verið henni erfið raun, rétt eins og öllum öðrum. „Ég hef komið til fundar við slitastjórn bankans samkvæmt beiðni hennar og svarað þar öllum spurningum sem til mín var beint. Ég hef sömuleiðis verði kvödd til skýrslugjafar hjá embætti sérstaks saksóknara sem vitni en ekki sakborningur. Ég mun hér eftir sem hingað til veita allar þær upplýsingar sem ég get og þörf kann að vera fyrir við athugun á málefnum bankans," segir í tilkynningu Svöfu.
Tengdar fréttir Slitastjórn Landsbankans óskar skýringa hjá bankaráði Slitastjórn og skilanefnd Landsbankans hefur sent öllum bankaráðsmönnum bankans og tveimur bankastjórum fyrir hrun, að Björgólfi Guðmundssyni undanteknum, bréf þar sem óskað er skýringa þeirra á ýmsum atriðum og meintu misferli í þeirra í starfi sem upp hafa komið við rannsóknir á málefnum bankans. 9. febrúar 2011 13:04 Mest lesið Munaði litlu að nýliði skákaði borgarstjóra Innlent „Fyrst og fremst er verið að hafna oddvitanum“ Innlent Icelandair aflýsir flugferðum Innlent Þjóðvarðlið virkjað eftir að ICE skaut mann til bana Erlent Maðurinn er fundinn Innlent Skotinn til bana: Myndefnið þvert á orð ráðherrans Erlent Gripnir á 165 á áttatíu götu og á 157 á sextíu götu Innlent Fyrrverandi yngsti þingmaður sögunnar skiptir um flokk og fer fram Innlent Kerfið hafi brugðist Innlent „Örstutt þunglyndi yfir niðurstöðunum“ Innlent Fleiri fréttir Metfjöldi vill stíga á svið með Íslenska dansflokknum Faðirinn í hungurverkfalli í lokaðri móttökustöð og móðirin ein með börnin Aðeins tíu prósent sem leita til Stígamóta kæra ofbeldið Spyr hvort að Rúv finnist hún „hundleiðinleg t***a“ „Örstutt þunglyndi yfir niðurstöðunum“ Maðurinn er fundinn Kerfið hafi brugðist Sjálfstæðismenn mynda bandalag á Akureyri Sundabraut og Fljótagöng verkefni innviðafélagsins Háværar flugvélar sem vöktu athygli í gær voru á æfingu „Fyrst og fremst er verið að hafna oddvitanum“ Fyrrverandi yngsti þingmaður sögunnar skiptir um flokk og fer fram Heiðu hafnað og fjöldi niðurfellinga heimilisofbeldismála hjá lögreglu Segir Heiðu hafa átt betra skilið Icelandair aflýsir flugferðum Fyrrverandi ráðherrar ræða alþjóðamálin Gripnir á 165 á áttatíu götu og á 157 á sextíu götu Tvö pör handtekin grunuð um líkamsárásir Munaði litlu að nýliði skákaði borgarstjóra Stóra verkefnið að vinna aftur traust borgarbúa Gríðarleg vonbrigði að reyndri konu sé ekki treyst Pétur Marteinsson kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík Samfylkingin valdi sér borgarstjóraefni Valið á milli gömlu og nýju Samfylkingarinnar Gullhúðað afnám jafnlaunavottunar Tvöfalt fleiri aldraðir leituðu hjálpar vegna ofbeldis Vandræðagangur með skilaboð á versta tíma fyrir Heiðu Leita að öðrum til að taka við Ísafjarðarfluginu Allir hafi áhuga á Íslandi Biður Dóru Björt afsökunar eftir deilur um vetrarþjónustu Sjá meira
Slitastjórn Landsbankans óskar skýringa hjá bankaráði Slitastjórn og skilanefnd Landsbankans hefur sent öllum bankaráðsmönnum bankans og tveimur bankastjórum fyrir hrun, að Björgólfi Guðmundssyni undanteknum, bréf þar sem óskað er skýringa þeirra á ýmsum atriðum og meintu misferli í þeirra í starfi sem upp hafa komið við rannsóknir á málefnum bankans. 9. febrúar 2011 13:04