Segir alla styðja stjórnina 6. janúar 2011 05:00 Hvorki Atli Gíslason né Lilja Mósesdóttir, sem bæði sátu hjá við afgreiðslu fjárlagafrumvarpsins, vildu tjá sig við fjölmiðla að loknum þingflokksfundi í gærkvöldi. Fréttablaðið/Anton „
Við vorum fyrst og fremst að fara yfir stöðuna almennt og fara yfir grundvöllinn og stjórnarsamstarfið og fá niðurstöðu í það til þess að það væri ekkert kjaftæði í gangi um það,“ sagði Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, að loknum þingflokksfundi í gærkvöldi. Á fundinum ræddu þingmenn Vinstri grænna meðal annars þá samstarfsörðugleika sem upp hafa komið í flokknum undanfarið. Þeir endurspegluðust meðal annars í því að þrír þingmenn flokksins, þau Atli Gíslason, Ásmundur Einar Daðason og Lilja Mósesdóttir, sátu hjá við afgreiðslu fjárlaga fyrir jól. Steingrímur sagði að nú gleðjist eflaust margir sem hafi haft miklar áhyggjur af heilsu ríkisstjórnarinnar undanfarna daga. Þeir geti nú tekið gleði sína á ný sem vilji stjórninni vel og að hún nái að vinna úr þeim ágreiningi sem uppi hafi verið. „Við erum komin vel á veg í þeim efnum, og til þess þurfum við sterka og starfhæfa ríkisstjórn. Ég tel að niðurstaðan sé skýr í þeim efnum eftir daginn í dag, að stjórnin er það,“ sagði Steingrímur. Hann sagði niðurstöðu fundarins skýra. Engin breyting hafi orðið á stöðu Vinstri grænna sem ríkisstjórnarflokks, allir þingmenn flokksins styðji ríkisstjórnina. „Við ætlum að halda áfram að funda og ræða þau stóru viðfangsefni sem við vitum að við erum ýmist með í höndunum eða við vitum að eru fram undan. Við ætlum að reyna að gefa okkur meiri tíma til að þétta raðirnar og tala saman, reyna að bæta okkar vinnubrögð hvað það snertir,“ sagði Steingrímur. Hann sagði umræðuna sem hafi komist á flug í samfélaginu eftir afgreiðslu fjárlaganna hafa næstum verið barnalega. Ekkert tilefni hafi verið til að ætla að breytingar yrðu á stjórnarsamstarfi Vinstri grænna og Samfylkingarinnar. Spurður hvort þingmennirnir þrír sem ekki studdu fjárlög ríkisstjórnarinnar njóti trausts hjá öðrum þingmönnum flokksins sagði Steingrímur: „Já, við treystum hvert öðru, og ræðum það þá ef við þurfum að jafna einhvern ágreining, eða þurfum að gera athugasemdir við verk hver annars þá bara gerum við það. Það er okkar stíll.“ Hann segir ýmsan ágreining hafa verið jafnaðan á fundinum í gær, þó margt sé enn óleyst. Áfram verði fundað til að ræða þau stóru viðfangsefni sem nú blasi við. Spurður hvort þremenningarnir muni áfram sitja í nefndum Alþingis fyrir hönd flokksins sagði hann það ekki hafa verið rætt á þessum fundi. Það verði mögulega rætt þegar nær dragi þingsetningu. brjann@frettabladid.is
Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Enn þykknar upp hjá SÁÁ Innlent Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Erlent Fleiri fréttir Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Sjá meira