Bæjarsjóður greiddi fyrir kosningaáróður Erla Hlynsdóttir skrifar 15. febrúar 2011 11:37 Hafsteinn Karlsson telur að Gunnar Birgisson þurfi að svara fyrir greiðsluna Mynd: Vilhelm Gunnarsson
Hafsteinn Karlsson, forseti bæjarstjórnar Kópavogsbæjar og bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar, segir það alvarlegt mál ef fulltrúi Sjálfstæðisflokksins hefur viljandi látið bæjarsjóð greiða fyrir kynningarefni í kosningabaráttunni árið 2006. „Ég þvertek ekki fyrir að reikningurinn hafi óvart farið þangað. Það er þá mjög óheppilegt," segir Hafsteinn í samtali við Vísi. „En ef þetta er gert viljandi þá er það alvarlegt mál," segir hann. Hafsteinn ritaði bréf í Morgunblaðið 10. febrúar þar sem hann sagði að til væru skýrar vísbendingar um að bæjarsjóður Kópavogs hafi greitt fyrir efni sem Sjálfstæðisflokkurinn notaði í kosningabaráttu sinni. Jóhann Ísberg, formaður Sjálfstæðisfélags Kópavogs, birti síðan í gær bréf í Morgunblaðinu þar sem hann skoraði á Hafstein að standa við stóru orðin og upplýsa hvað hann eigi þarna við. Hafsteinn segir að í skjalasafni Bæjarskipulagsins sé glærusýning sem ber nafnið „Það besta fyrir Kópavog." Hún var unnin vorið 2006 og greidd af bæjarsjóði. Í glærunum er talað um „kosningastefnuna okkar" og rætt sérstaklega um „framkomu Samfylkingarinnar" í Gustsmálinu. Í Morgunblaðinu í dag ritar Hafsteinn: „Enginn starfsmaður Bæjarskipulags notaði þessa kynningu eða óskaði eftir því að hún yrði gerð enda hefur Skipulagið aldreið verið með kosningastefnuskrá." Kynningarefnið kostaði bæjarsjóð 187.500 krónur. Í samtali við Vísi segir Hafsteinn enga ástæðu til að tengja þessar gjörðir við Sjálfstæðisflokkinn í heild sinni og er hann hreinlega ánægður með að formaður Sjálfstæðisfélagsins kannast ekki við málið. „Ég held að þáverandi bæjarstjóri þurfi að svara fyrir þetta," segir Hafsteinn en bæjarstjóri Kópavogs á þessum tíma var Gunnar I. Birgisson. Hafsteinn telur líklegt að glærusýningin hafi verið notuð á kynningarfundum þar sem bæjarstjórinn fór yfir stefnumál Sjálfstæðisflokksins. Hafsteinn segist aðspurður að málið hafi ekki verið rætt innan bæjarstjórnar enda sé þarna um að ræða upplýsingar sem eru tiltölulega nýkomnar fram.
Mest lesið Ekki boðlegt að þingið hunsi þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Segir dulda skattahækkun taka gildi á næsta ári Innlent Þriðji KFC-morðinginn fundinn rúmlega fjörutíu árum síðar Erlent Mesti snjór í New York í fjögur ár Erlent Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Innlent Tilhæfulaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Innlent Maðurinn sem var næstur í röðinni hjá mormónum látinn Erlent Sakamálin sem einkenndu árið sem er á enda Innlent Þrír létust í óveðrinu Erlent Líkamsárás í miðbænum Innlent Fleiri fréttir „Gamla góða Ísland, bara betra“ Gróður farinn að grænka fyrir norðan Ferðakostnaður forsetans rúmar tuttugu milljónir Sakamálin sem einkenndu árið sem er á enda Ekki boðlegt að þingið hunsi þjóðaratkvæðagreiðslu Margfaldur þungi í loftárásum og kyntákn kveður Afbrot, fjölmiðlastyrkir og stefna Miðflokksins Segir dulda skattahækkun taka gildi á næsta ári Líkamsárás í miðbænum Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Reyndi ítrekað að stofna til slagsmála við skemmtistað Sjálfvirkir lyfjaskammtarar borgi sig tvöfalt til baka Tilhæfulaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Keyptu aðstoð vegna leiðréttingar landsframlags og hringferðar ráðherra Frumkvæðisvinna lögreglu að loka fjórum afhendingarstöðum „Fara þarf í raunverulegar aðgerðir“ Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Kjartan sækist ekki eftir endurráðningu sem bæjarstjóri Landeldi í vexti og lögregla lokar áfengisverslunum Árekstur á Suðurlandsbraut Ekki talinn tengjast aukinni eldvirkni Handteknir grunaðir um framleiðslu fíkniefna Jarðskjálfti við Kleifarvatn Lögreglumenn eltu lausa hesta Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Hafði komið sér fyrir á háalofti hótels Sjá meira