Býst ekki við því að Sjálfstæðisflokkurinn klofni Karen D. Kjartansdóttir skrifar 4. febrúar 2011 18:42
Sjálfstæðisflokkurinn er ekki að fara klofna vegna Icesave málsins að mati stjórnmálafræðings sem telur ennfremur að Bjarni Benediktsson sé ekki að ganga gegn ályktun síðasta landsfundar. Sjálfstæðisflokkurinn er ekki að klofna vegna Icesave-málsins, að mati Stefaníu Óskarsdóttur stjórnmálafræðings sem gegnt hefur trúnaðarstöfum fyrir flokkinn. Hún telur enn fremur að Bjarni Benediktsson sé ekki að ganga gegn ályktun síðasta landsfundar eins og hann er sakaður um í leiðara Morgunblaðsins í dag. Í leiðaranum sendir Davíð Oddsson, fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins og núverandi ritstjóri blaðsins, Bjarna heldur kaldar kveðjur. Meðal annars kallar hann Bjarna vikapilt Steingríms J. Sigfússonar fjármálaráðherra og í leiðaranum eru forystumenn Sjálfstæðisflokksins sagðir „trítla á eftir" Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra. „Ég vil benda á að sá landsfundur sem síðast var haldinn var aukalandsfundur, sem ekki var fjölmennur í sögulegu ljósi en það helgaðist meðal annars af því að til hans var boðað um mitt sumar. Fundurinn skilaði ekki ályktunum í öllum málaflokkum eins og venja er á landsfundum heldur var þar samin ein almenn stjórnmálaályktun. Þau orð sem vitnað er til af ýmsum um að Íslendingar eigi ekki að ganga að löglausum samningum er í raun bara hægt að finna í lítilli efnisgrein innan ályktunarinnar, sem fékk ekki ítarlega umræðu á sjálfum landsfundinum þó svo að til nokkurra orðaskipta hafi komið á sjálfum fundinum. En þetta var ekki rætt í málefnanefndum flokksins þannig að baki ályktuninni liggur ekki ígrunduð afstaða flokksstofnana," segir hún. Þá telur Stefanía að sú ólga sem nú er uppi í flokknum sé ekki sú mesta sem komið hafi upp vegna málefnaágreinings. Stefanía nefnir sem dæmi að fiskveiðistjórnunarlögin hafi í gegnum tíðina orðið til þess að ýmsir hafi sagt sig úr flokknum og sú deila orðið til þess að Frjálslyndi flokkurinn var stofnaður. Sagan eigi eftir að leiða það í ljós hvort Icesave-málið muni valda slíkum deilum. „Það hefur verið kallað eftir nýjum borgaralegum flokki á hægri vængnum. Ég dreg samt mjög í efa að þetta mál verði til þess," segir Stefanía.
Mest lesið Samfylkingin valdi sér borgarstjóraefni Innlent Faðirinn í hungurverkfalli í lokaðri móttökustöð og móðirin ein með börnin Innlent Þjóðvarðlið virkjað eftir að ICE skaut mann til bana Erlent Gríðarleg vonbrigði að reyndri konu sé ekki treyst Innlent „Eftir þetta getur enginn treyst honum“ Erlent Munaði litlu að nýliði skákaði borgarstjóra Innlent Ungir Sjálfstæðismenn fengu áfengi í ferð með Vilhjálmi og fóru svo á kjörstað Innlent „Fyrst og fremst er verið að hafna oddvitanum“ Innlent Icelandair aflýsir flugferðum Innlent Stigmögnun í nágrannaerjum: „Hann vildi keyra á mig“ Innlent Fleiri fréttir Inni í húsinu þegar eldur logaði í fjölbýlishúsi Náttúruverndarsamtök fjarlægðu stíflu Ungir Sjálfstæðismenn fengu áfengi í ferð með Vilhjálmi og fóru svo á kjörstað Loðna fundist á stóru svæði Metfjöldi vill stíga á svið með Íslenska dansflokknum Faðirinn í hungurverkfalli í lokaðri móttökustöð og móðirin ein með börnin Aðeins tíu prósent sem leita til Stígamóta kæra ofbeldið Spyr hvort að Rúv finnist hún „hundleiðinleg t***a“ „Örstutt þunglyndi yfir niðurstöðunum“ Maðurinn er fundinn Kerfið hafi brugðist Sjálfstæðismenn mynda bandalag á Akureyri Sundabraut og Fljótagöng verkefni innviðafélagsins Háværar flugvélar sem vöktu athygli í gær voru á æfingu „Fyrst og fremst er verið að hafna oddvitanum“ Fyrrverandi yngsti þingmaður sögunnar skiptir um flokk og fer fram Heiðu hafnað og fjöldi niðurfellinga heimilisofbeldismála hjá lögreglu Segir Heiðu hafa átt betra skilið Icelandair aflýsir flugferðum Fyrrverandi ráðherrar ræða alþjóðamálin Gripnir á 165 á áttatíu götu og á 157 á sextíu götu Tvö pör handtekin grunuð um líkamsárásir Munaði litlu að nýliði skákaði borgarstjóra Stóra verkefnið að vinna aftur traust borgarbúa Gríðarleg vonbrigði að reyndri konu sé ekki treyst Pétur Marteinsson kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík Samfylkingin valdi sér borgarstjóraefni Valið á milli gömlu og nýju Samfylkingarinnar Gullhúðað afnám jafnlaunavottunar Tvöfalt fleiri aldraðir leituðu hjálpar vegna ofbeldis Sjá meira