Meintur höfuðpaur stöðvaður í Bandaríkjunum fyrr í mánuðinum 31. október 2011 19:00
Rúmlega fertugur karlmaður sem talinn er vera höfuðpaur í stóra fíkniefnamálinu sem fréttastofan sagði frá í gær var stöðvaður við landamæraeftirlit í Bandaríkjunum fyrr í mánuðinum. Hann hlaut dóm fyrir fíkniefnamisferli í júní á þessu ári. Annar maður sem situr í gæsluvarðhaldi segist hafa verið svikinn í málinu. Málið snýst um sendingu sem kom með gámaskipi frá Hollandi en í henni var að finna tugi kíló af fíkniefnum, kókaín, amfetamín, e-töflur og stera. Í kjölfarið var starfsmaður heildsölufyrirtækis á höfuðborgarsvæðinu handtekinn og úrskurðaður í gæsluvarðhald. Lögregla beið átekta og á laugardag var annar karlmaður, sem talinn er vera höfuðpaur í málinu, handtekinn á Keflavíkurflugvelli og úrskurðaður í gæsluvarðhald til 11.nóvember. Sá aðili hefur alloft komið við sögu lögreglu hér á landi. Meðal annars var hann viðriðinn stóra fíkniefnamálið á sínum tíma en hann hlaut dóm fyrir fíkniefnamisferli í júní á þessu ári.. Athygli vekur hinsvegar að þann 5.október, nokkrum dögum áður en lögreglan lét til skarar skríðar, var hann stöðvaður við Landamæraeftirlit á Flórída og var ekki hleypt inn í landið. Samkvæmt heimildum fréttastofu ætlaði hann að spila þar golf, en fór þess í stað til Spánar. Þaðan var hann að koma þegar hann var stöðvaður nú um helgina. Meintur höfuðpaur er búsettur hér á landi, og eftir því sem fréttastofa kemst næst eru hann og sá sem handtekinn var fyrr í mánuðinum kunningjar. Sá aðili sem er á sextugsaldri hefur aldrei komið við sögu lögreglu áður. Heimildir fréttastofu herma að hann telji sig hafa verið svikinn í málinu. Hann hafi einungis verið beðinn um að koma pakka sem innihéldi stera hingað til lands. Og hafi því ekki haft hugmynd um hið mikla magn fíkniefna. Hann hafi tekið á móti pakkanum í Hollandi og komið honum í hendur þriðja aðila, sem hafi sett hann um borð í gámaflutningaskipið. Ætlunin hafi síðan verið sú að hann tæki við pakkanum hér á landi. Til þess kom hinsvegar ekki, þar sem lögregla handtók hann áður, eftir umfangsmiklar símhleranir mánuðum saman.
Mest lesið Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Innlent Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Innlent Hátt í áttatíu eftirskjálftar Innlent Handteknir eftir líkamsárás Innlent Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Innlent Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Erlent Fulltrúar Trump á fund Pútíns og svo Selenskís Erlent Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Innlent Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Innlent Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Fleiri fréttir Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíll hafnaði á ljósastaur Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Myndbönd af banaslysinu í dreifingu og kvartanir vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Langreyðarkvótinn mun tæplega nást Fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng að næturlagi í næstu viku Eyvindur P. Eiríksson látinn Lægðardrag teygir sig yfir landið Myndir: Opnunarhóf nýs Kvennaathvarfs Tekinn á 190 þar sem má aka á 90 kílómetra hraða Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Sjá meira