Segir farsíma í fæðingarorlofi jafnréttismál 16. nóvember 2011 04:00 Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir segist eingöngu hafa síma sinn frá borginni opinn fyrir símtöl og sms og "einstaka símtöl frá borgarstarfsmönnum og borgarfulltrúum“. Fréttablaðið/Stefán „
Þó að borgarfulltrúi fari í leyfi eða orlof fer hann ekki úr starfi sínu, áfram svarar hann erindum, símtölum, fundum og tölvupósti," segir Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir borgarfulltrúi. Þorbjörg spurðist fyrir um það hjá forsætisnefnd borgarinnar hvort breyta mætti reglum um símanotkun þannig að borgarfulltrúar fengju greiddan farsímakostnað í fæðingarorlofi. Því var hafnað á fundi nefndarinnar eins og Fréttablaðið sagði frá í gær. Sjálf er Þorbjörg barnshafandi og í leyfi. Fæðingarorlof hennar er þó ekki hafið eins og sagði í blaðinu. Þorbjörg segir borgarfulltrúa fá greiddar að hámarki 15 þúsund krónur á mánuði í símakostnað. „Það að borga ekki símakostnað í fæðingarorlofi borgarfulltrúa er því samtals níutíu þúsund krónur að hámarki miðað við sex mánaða orlof," bendir hún á. Þá segir Þorbjörg að eftir að hún fór í leyfi hafi Vodafone sagst myndu loka númeri hennar nema hún gerði samning við fyrirtækið. „Að loka númeri á borgarfulltrúa á sér ekki fordæmi," segir Þorbjörg sem telur stjórnmálamenn, jafnvel þótt þeir séu óvinsælir, eiga „rétt á sæmilegum kjörum og vinnuaðstöðu". Að sögn Þorbjargar var símareglunum breytt nýlega en hún óskað endurskoðunar. „Þetta er réttlætismál og jafnréttismál," segir Þorbjörg sem kveður engan sem lesið hafi frétt Fréttablaðsins í gær hafa fengið tilefni til að spyrja hvort eðlilegt sé að sími sé tekinn af kvenborgarfulltrúa sem fari í fæðingarorlof og reglum breytt rétt áður en það gerist. -gar
Mest lesið Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Innlent Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Innlent Klausturbleikjan fæst ekki lengur Innlent Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Innlent „Skráningum rignir inn“ Innlent „Verulegur samdráttur og menn eru að segja upp mannskap“ Innlent Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Innlent Ný hreyfing mynduð gegn aðild að ESB Innlent Dæmdur morðingi grunaður í Straumsvíkurmálinu Innlent Klifu á topp Empire State-byggingarinnar Erlent Fleiri fréttir Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Klausturbleikjan fæst ekki lengur Staðfestir stækkun friðlands við Gróttu og Seltjörn Fjórtán ný félög flytja í Mannréttindahúsið Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Lokuðu götu á Ólafsfirði vegna tilkynningar um skotvopn Fylgi Sjálfstæðisflokks ekki meira í sex ár „Verulegur samdráttur og menn eru að segja upp mannskap“ „Skráningum rignir inn“ Eftirspurn eftir kókaíni virðist aldrei hafa verið meiri Staðfesta fjölskyldutengsl nú með DNA-rannsókn Nýtt innviðafélag hlýtur nafnið Göng og brú Ný hreyfing mynduð gegn aðild að ESB Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Dæmdur morðingi grunaður í Straumsvíkurmálinu Rannsókn í gangi á lengd dauðastríðsins Kókaínhaldlagningar komnar í 200 kíló á hálfu ári Tveimur sagt upp á Bifröst Enn eitt fíkniefnametið slegið og yfirvöld hvött til að afturkalla hvalveiðileyfi Rennibrautinni lokað og ljósin skoðuð Hvalur háði hálftíma dauðastríð Hanna Katrín eigi að standa með starfsfólki Hvals – ekki gagnrýna það Gómuð af tollinum með tvo lítra af kókaíni innvortis Komst á bragð skemmdarverka í baráttunni við Kristján Loftsson Mokgræðir á rafmyntum Séra Þórir Stephensen er látinn Féll fram af svölum á hjúkrunaheimili og lést Lögregla rannsakar tvö innbrot í miðborginni Sér Blönduós eflast með byggðalínu og virkjunum Sjá meira