Segir systur sína hafa séð Júlla í Draumnum fyrir lyfjum 16. nóvember 2011 10:15 Mynd/Valgarður
Júlíus Þorbergsson í Draumnum geymdi ekki lyfseðilsskyld lyf fyrir vinkonu sína eins og hann hefur fullyrt, heldur keypti hann þau reglulega af henni. Þetta sagði bróðir konunnar fyrir dómi í gær. „Hann var ekki að geyma neitt fyrir hana, hún var að selja honum lyf," sagði bróðirinn. „Ég vildi bara ekki að hún væri höfð fyrir rangri sök." Bróðirinn, sá yngsti í fjölskyldunni, sagðist hafa lesið frétt Fréttablaðsins af fyrsta degi réttarhaldanna yfir Júlíusi og ráðið af samhenginu að konan sem Júlíus kvað eiga lyfin hlyti að vera systir hans, sem lést í desember í fyrra. Honum hefði blöskrað frásögnin og því haft samband við lögreglu og boðið sig fram sem vitni í málinu. Að hans sögn var hann síðustu ár duglegur að skutla systur sinni hingað og þangað um bæinn, og í eitt sinn hafi hann farið með hana í apótek. Hún hafi komið út með fullan poka af lyfjum – sex til níu kassa – og sagst hafa góð tök á læknum sem skrifuðu iðulega upp á allt of mikið magn fyrir hana. Að því búnu hafi hún beðið um að vera ekið í Drauminn á Rauðarárstíg, farið inn með lyfin, skilið þau þar eftir og komið út með fullt umslag af peningum. Þetta hafi hún sagst gera reglulega til að verða sér úti um aukapening. Bróðirinn kvaðst hafa neitað að skutla henni þangað framar. Fyrir dóminn kom einnig Matthías Halldórsson, fyrrverandi landlæknir. Hann sagði að í starfi sínu hefði hann haft mikil samskipti við fólk sem misnotaði lyf og ættingja þess. „Og þá fór ég að heyra mikið nafn þessa manns, sem ég hef aldrei séð, en var kallaður Júlli í Draumnum," sagði Matthías. Fólk hefði borið að þar væri auðvelt að nálgast læknadóp.„Mér fannst þetta eiginlega ekki vera mitt mál, ég var meira að fylgjast með læknum, ekki dópsölunum sjálfum," sagði Matthías, en hann hefði þó skrifað bréf til lögreglunnar og látið vita af þessu. Þá mætti fyrir dóminn eldri maður sem sagðist hafa heyrt frá kunningjum sínum að í Draumnum væri selt læknadóp og ákveðið að sannreyna það sjálfur. „Það var verið að gera grín að því í mín eyru að þetta væri gerviapótekið í Reykjavík – og ég komst að því að þetta var rétt," sagði maðurinn. Hann hefði ekki átt í neinum vandræðum með að kaupa lyf, en hefði síðan skilað þeim rakleiðis til lögreglu. stigur@frettabladid.is
Mest lesið Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Innlent Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Innlent Klausturbleikjan fæst ekki lengur Innlent Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Innlent „Verulegur samdráttur og menn eru að segja upp mannskap“ Innlent „Skráningum rignir inn“ Innlent Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Innlent Ný hreyfing mynduð gegn aðild að ESB Innlent Dæmdur morðingi grunaður í Straumsvíkurmálinu Innlent Féll fram af svölum á hjúkrunaheimili og lést Innlent Fleiri fréttir Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Klausturbleikjan fæst ekki lengur Staðfestir stækkun friðlands við Gróttu og Seltjörn Fjórtán ný félög flytja í Mannréttindahúsið Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Lokuðu götu á Ólafsfirði vegna tilkynningar um skotvopn Fylgi Sjálfstæðisflokks ekki meira í sex ár „Verulegur samdráttur og menn eru að segja upp mannskap“ „Skráningum rignir inn“ Eftirspurn eftir kókaíni virðist aldrei hafa verið meiri Staðfesta fjölskyldutengsl nú með DNA-rannsókn Nýtt innviðafélag hlýtur nafnið Göng og brú Ný hreyfing mynduð gegn aðild að ESB Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Dæmdur morðingi grunaður í Straumsvíkurmálinu Rannsókn í gangi á lengd dauðastríðsins Kókaínhaldlagningar komnar í 200 kíló á hálfu ári Tveimur sagt upp á Bifröst Enn eitt fíkniefnametið slegið og yfirvöld hvött til að afturkalla hvalveiðileyfi Rennibrautinni lokað og ljósin skoðuð Hvalur háði hálftíma dauðastríð Hanna Katrín eigi að standa með starfsfólki Hvals – ekki gagnrýna það Gómuð af tollinum með tvo lítra af kókaíni innvortis Komst á bragð skemmdarverka í baráttunni við Kristján Loftsson Mokgræðir á rafmyntum Séra Þórir Stephensen er látinn Féll fram af svölum á hjúkrunaheimili og lést Lögregla rannsakar tvö innbrot í miðborginni Sér Blönduós eflast með byggðalínu og virkjunum Sjá meira