Ákærðir fyrir skotárás, rán og ofbeldi 18. febrúar 2011 05:00 Einn byssumanna leiddur fyrir dómara.
Ríkissaksóknari hefur ákært fjóra menn fyrir skotárás á heimili í Ásgarði í Reykjavík á aðfangadag á síðasta ári. Að frumkvæði eins þeirra fóru þeir að heimili manns sem þar bjó ásamt sambýliskonu sinni og tveim ungum börnum. Mennirnir voru vopnaðir haglabyssu. Þeir neituðu sök við þingfestingu málsins í gær. Í ákærunni segir að þeir hafi ætlað að brjóta sér leið inn í húsið og ráðast með ofbeldi á heimilisföðurinn. Hafi tveir þeirra skotið hvor sínu skotinu í útidyrahurð á heimilinu. Einn fjórmenninganna stóð á verði og lét hina vita þegar hann sá til lögreglunnar á leið á vettvang. Þá flúðu mennirnir en náðust skömmu síðar. Þeir eru ákærðir fyrir að hafa stofnað lífi og heilsu íbúa hússins í augljósan háska. Heimilisfaðirinn og sambýliskona hans gera hvort um sig einkaréttarkröfu á hendur fjórmenningunum um miskabætur upp á 1,2 milljónir króna. Einn fjórmenninganna er jafnframt ákærður fyrir að hafa kýlt lögreglumann í andlitið sama dag og árásin átti sér stað. Lögreglumaðurinn fékk bæði sár og mar á nef. Síðastnefndi maðurinn er loks ákærður, ásamt manni sem ekki tók þátt í skotárásinni, fyrir rán í 11-11 verslun í Skipholti í ágúst 2009, þar sem þeir ógnuðu grímuklæddir tveimur starfsmönnum verslunarinnar með hnífum og höfðu tíu þúsund krónur á brott með sér. Sjötti maðurinn er ákærður fyrir að hafa liðsinnt þeim við ránið með því að aka þeim á vettvang, vitandi að þeir ætluðu að fremja rán í versluninni. Hann beið meðan þeir rændu hana og ók þeim svo á brott. Kaupás gerir kröfu um að ránsmennirnir greiði níu þúsund krónur í miskabætur.- jss
Mest lesið Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent Enn þykknar upp hjá SÁÁ Innlent Systir Haraldar er látin Erlent Kourani farinn úr landi Innlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Innlent „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Innlent Fleiri fréttir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Sjá meira