Listasafnið víkur fyrir Hörpu 10. mars 2011 07:00 Airwaves verður ekki haldin í Listasafni Reykjavíkur í ár. Fréttablaðið/Hörður
Tónlistarhátíðin Iceland Airwaves verður haldin að hluta til í Hörpunni í haust. Samningur þess efnis var nýlega undirritaður. Stærstu tónleikar hátíðarinnar verða í Hörpunni, sem gerir það að verkum að Listasafn Reykavíkur, Hafnarhúsið, verður ekki á meðal tónleikastaða í ár. Þrír salir verða notaðir í Hörpunni sem taka á bilinu 250 til 1.500 manns, allir í stæði. Með því að færa sig í yfir í Hörpuna vonast framkvæmdastjórinn Grímur Atlason til að Airwaves-hátíðin geti tekið á móti um sex þúsund manns í stað fimm þúsund eins og verið hefur. „Við skoðuðum húsið og það eru gríðarlega miklir möguleikar þar," segir Grímur. Hann býst við mun betri hljómi en hingað til hefur þekkst á stærstu tónleikunum í Listasafninu. „Við sáum mikla möguleika í þessum þremur sölum á að halda stóra tónleika sem myndu hljóma vel og sem fólk sæi betur. Það er hægt að koma fleirum inn í stærsta salinn en í Listasafnið og eftir að hafa legið vel yfir þessu fannst okkur þetta vera skrefið sem þyrfti að taka fyrir hátíðina. Hún er búin að vera stöðug í nokkur ár en okkur fannst gáfulegt að taka skrefið og færa hana upp á annan stall." Í Hörpunni verður einnig eitthvað um tónleika utan dagskrár auk þess sem fjölmiðlamiðstöð hátíðarinnar verður færð þangað inn. „Airwaves kemur með yngra fólk inn í Hörpuna og ég held að allir vilji að þetta hús verði notað af fleiri hópum en þeim sem eldri eru," segir Grímur. - fb
Mest lesið Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Lífið Brúðkaup ársins 2025 Lífið Einhverfir kaþólikkar um allan heim heita Þorlákur Lífið Cooper bað móðurina um hönd Hadid Lífið „Mér finnst gaman að láta sjokkera mig“ Lífið Heitt í hamsi hjá gestum á „helvíti á jörðu“ í Breiðholti Lífið Helvíti á jörðu: Emmsjé Gauti minnti á líkamsræktarþjálfara í maníu Gagnrýni Hefur misst vini og kunningja vegna skoðana sinna Lífið Veikindi eyðilögðu líka stóru stund Manúelu Lífið Laufey á landinu Lífið Fleiri fréttir Laufey á landinu Þar sem vinsælustu lög landsins verða til Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Einhverfir kaþólikkar um allan heim heita Þorlákur Cooper bað móðurina um hönd Hadid „Mér finnst gaman að láta sjokkera mig“ Brúðkaup ársins 2025 Heitt í hamsi hjá gestum á „helvíti á jörðu“ í Breiðholti Chris Rea hefur ekið heim um jólin í síðasta skipti Saga jarðaði alla við borðið Vísa ásökunum Skinner um kosningasvindl á bug Kimmel ávarpar bresku þjóðina: Frábært ár fyrir fasisma „Ég hugsa til þín á hverjum einasta degi“ Stjörnulífið: Óskar tíkunum gleðilegra jóla Veikindi eyðilögðu líka stóru stund Manúelu Hefur misst vini og kunningja vegna skoðana sinna Leitin á Svínafellsjökli sem hefur enn ekki skilað árangri Krakkatía vikunnar: Ísskápastríð, Eivör og Grafarvogur „Við byrjuðum að hlusta á jólalög í júlí“ Frægir fundu ástina 2025 Íslenska stelpan sem gerðist mormóni Fréttatía vikunnar: Rob Reiner, Dóra Björt og fullir unglingar 500 Esjuferðir á árinu: „Sumir hrista bara hausinn og lygna augunum“ Útgefandi Walliams lætur hann róa Fáklæddir barþjónar þegar Regnboginn opnaði í Bíó Paradís Þriðja stigs krabbameinið það besta sem kom fyrir hann Dúnninn bakaður í fjóra sólarhringa til að drepa allt í honum Heilsu krónprinsessunnar hrakar gríðarlega Pete orðinn pabbi Nýkominn úr meðferð og „sjaldan verið betur nýsleginn túskildingur“ Sjá meira