Vinir Sjonna með dansleik í kvöld 9. apríl 2011 11:00 Vinir Sjonna, Eurovision-farar Íslands, verða á Spot í Kópavogi í kvöld en þetta er fyrsti og eini dansleikurinn sem sveitin kemur fram á fyrir ferðina til Þýskalands.Fréttablaðið/Daníel
Sexmenningarnir í Vinum Sjonna ætla að blása til dansleiks á Spot í Kópavogi í kvöld. Þetta verða fyrstu og einu tónleikar Eurovision-faranna fyrir Þýskalandsferðina. Eurovision-drengirnir Hreimur Örn, Pálmi Sigurhjartarson, Matthías Matthíasson, Benedikt Brynleifsson, Gunnar Ólason og Vignir Snær eru allir önnum kafnir menn og verða því að nýta hverja einustu stund til að æfa sig. Sjálf Icesave-helgin verður undirlögð af æfingum. „Við erum allir hver á sínu horni landsins og verðum því bara að æfa í törnum eins og um helgina. Síðan tökum við síðustu vikuna áður en við förum út og æfum eins og skepnur, því þó að þetta sé bara eitt lag er í mörg horn að líta,“ segir Hreimur Örn í samtali við Fréttablaðið. Drengirnir voru bókaðir á árshátíð á laugardaginn og ákváðu í kjölfarið að hita sig aðeins upp fyrir Düsseldorf þar sem Eurovision fer fram um miðjan maí. „Jógvan og Róbert Þór, bassaleikari, verða með okkur þannig að þetta er næstum því hljómsveitin Rokk sem Sjonni stofnaði á sínum tíma. Við erum auðvitað með alvöru prógramm og gætum hæglega leikið í fjóra til fimm tíma.“ Undirbúningur fyrir ferðina til Düsseldorf er í fullum gangi en í vikunni fékk Hreimur einhverjar þær bestu fréttir sem hann hefur fengið lengi. „Jónatan [Garðarsson] er búinn að hræða okkur mikið undanfarna daga og hefur látið það koma algjörlega skýrt fram að við hefðum engan tíma til að spila átján holur af golfi. En svo, eftir samningaviðræður og nokkuð þóf, fannst loks tími. Við fáum fjóran og hálfan tíma til að leika golf þriðjudaginn 3. maí og það eru nokkrir vellir sem koma til greina,“ segir kampakátur Hreimur Örn Heimisson, liðsmaður Vina Sjonna, íslensku Eurovision-faranna. Hreimur og Matthías eru forfallnir golffíklar og höfðu gengið með þann draum í maganum að geta spilað golf í Düsseldorf. Sá draumur virðist nú vera að rætast og segir Hreimur að þeir verði eins og barðir hundar að leik loknum. „Við munum gera allt sem okkur verður sagt að gera.“ freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Lífið Bríet sviptir hulunni af kærastanum Lífið Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Lífið Brjálaðar boltamömmur berjast Bíó og sjónvarp Stytta af Charlie Kirk á Times Square Lífið „Undirstaða Hörpu mun hristast undir hreinum og ómenguðum krafti“ Tónlist Fyrsta lesbían til að prýða Playboy Lífið „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Lífið Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Lífið Haaland hunsaði Holland Lífið Fleiri fréttir Stytta af Charlie Kirk á Times Square Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Sjá meira